Fréttir, Maður í náttúru

Dagur íslenskrar náttúru: 16. september

Náttúrupælingar - (SH).

Hvað einkennir náttúru Íslands?

Hér fyrir neðan eru atriði til umhugsunar sem hjálpa ykkur að svara spurningunni.

Hugsið líka um lífverurnar í öllu þessu samhengi.

> Ísland er eyja

Hvernig birtist það í náttúru landsins?

Skólakrakkar við Ægisíðu - (SH).

> Ísland er norðarlega á hnettinum

Hvernig skiptir það máli fyrir náttúruna?

Heimskort

Hmm – er þetta spurning um veðrið?

> Á Íslandi er eldvirkni

Hér verða sem sagt eldgos. Hvað þýðir það fyrir náttúruna á Íslandi? Í sumum löndum verða aldrei eldgos.

Gosið í Geldingadölum 21. apríl 2021 - (SH).

> Ísland er dreifbýlt

Hvernig skiptir það máli fyrir náttúruna?

Víðátta - (SH).

Ræðið saman um þessi atriði og punktið hjá ykkur það sem kemur í hugann. Þið þurfið að hugsa málin vel. Það er kannski meira þarna á bak við en þið haldið í fyrstu.

(Hér eru nokkrir punktar frá höfundi vefsins – skoðið þá þegar þið hafið sjálf velt málinu fyrir ykkur!)

Af hverju er haldið upp á Dag íslenskrar náttúru?

Ómar Ragnarsson

Dagur íslenskrar náttúru er á afmælisdegi Ómars Ragnarssonar, sem fæddist 16. september 1940. Auk þess að hafa verið skemmtikraftur og sjónvarpsmaður, og gert fjölda þátta um náttúruna, hefur hann lengi barist fyrir verndun íslenskrar náttúru.

Lögin hér að neðan tengjast sveit og óbyggðum.

Ómar Ragnarsson - (mynd af vef Forlagsins).