Maðurinn er, eins og hvert annað dýr, hluti af náttúrunni. Fyrir manninn er allt ómögulegt án hennar, en hvernig væri náttúran án manna?

Ef ekki væru menn væru engir dýragarðar.

Dýr eru yfirleitt ekki í fötum.

Öll dýr þurfa að koma sér fyrir, þar sem þau hafa nóg að éta og drekka og geta leitað sér skjóls og hvílst. Já og fjölgað sér. Fólk er engin undantekning.

Maðurinn er háður náttúrunni og hann hefur fundið leiðir til að færa sér hana í nyt á fjölbreyttan hátt. Fólk hefur reynt að hafa í sig og á, en einnig gert ýmislegt til að gera lífið léttara. Það er bara gott og jákvætt. Því miður hefur maðurinn samt bruðlað með gjafir jarðar (náttúruaulindirnar), gengið illa um og alls ekki hugsað um annað fólk, aðrar lífverur eða komandi kynslóðir. Það er sorglegt.

Hér á vefnum, undir Maður í náttúru, verður þetta rætt.

Margir eru samt góðir!

Kynnið ykkur verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10. bekk sem ber yfirskriftina Varðliðar umhverfisins.

Fólk að tína söl - (SH).
Bílaumferð veldur mengun - (SH).
Sóun - (SH).

Mannfjöldi í heiminum hefur aukist mjög mikið og af þeim sökum er ásókn í auðlindirnar líka mikil. Jarðarbúar náðu því að verða 8 milljarðar 15. nóvember 2022.

KENNARAR / FULLORÐNIR

Myndbandið sem hér birtist er frá 2018 en stenst nokkurn veginn tímans tönn. Það er birt á vef Reykjavíkurborgar um menntastefnu með svolitlum inngangi – lesa.

Mannkynið

Vefsíða þar sem hægt er að fylgjast með stærð mannkyns.

ATHUGIÐ að orðið billjón hefur aðra merkingu í Bandaríkjum, Frakklandi og nokkrum öðrum löndum en annars staðar í heiminum. Hjá þessum þjóðum merkir billjón sama og milljarður hjá okkur. Á síðunni er á nokkrum stöðum talað um billjónir í merkingunni milljarðar.