Biðukollur
Túnfíflar eru mjög áberandi á grasflötum og víðar í borgarlandinu þessa dagana. Gul blómin brosa á móti sólinni, en biðukollur eru líka áberandi.
Fíflar eru af körfublómaætt. Hin eiginlegu blóm eru samsett úr einu löngu gulu blaði og æxlunarfærum (fræflum og frævu). Þessi litlu blóm vaxa saman í „körfu“.
Í almennu tali, þegar rætt er um blóm fífilsins, er jafnan átt við körfurnar.
Já, blómin brosa skærgul á móti sólu. Hvert blóm opnast og lokast hvern dag, þar til það fer að visna. Þá lokast blómið og inni í því fer af stað atburðarás sem snýst um þroskun fræja og að undirbúa dreifingu þeirra.
Með því að skoða myndbandið fáið þið betri mynd af því sem gerist. Athugið að myndatökumaður hefur skorið í blómið og fjarlægt fræ til að sjá betur það sem máli skiptir.
- Á undirlaginu sitja fræin og útfrá þeim er stilkur (=leggur) með svifkransi á endanum.
- Áður og um það leyti sem biðukollan opnast, standa fræin og stilkarnir samsíða og þétt saman. Svifhárin liggja sömuleiðis þétt saman.
- Undirlagið í körfunni breytir um lögun frá því að vera örlítið skálarlaga yfir í kúlulaga.
- Þegar undirlagið verður kúlulaga myndast rými á milli fræjanna og stilkanna og svifkransar opnast. Biðukollan verður hnöttótt.
Hvað ætli líði langur tími frá því að fífilblómið lokast í síðasta sinn og biðukollan lætur sjá sig?
Prófið að stinga biðukollu varlega ofan í glas með vatni. Hvernig kemur það út?
Skoðið vel alla líkamshluta fífilsins:
RÓT
- Fíflar hafa eina meginrót en útfrá henni vaxa smærri hliðarrætur. Í rótinni er forðanæring.
LAUFBLÖÐ
- Hvernig er lögun blaðanna?
- Skoðið þau að ofan og neðan.
- Sjáið þið æðar?
- Eru blöðin loðin?
STÖNGUL
- Hvað er einkennandi fyrir stöngulinn?
- Takið eftir hljóðinu sem heyrist þegar þið slítið upp fífil!
- Er stöngullinn loðinn?
BLÓM
- Veljið eitt vel útsprungið blóm (körfu), skoðið það vel og lýsið.
- Eru gulu blöðin öll eins?
- Sjáið þið fræfla?
- Hvað má sjá undir blóminu?
Á mismunandi þroskastigi – (SH).
Smellið til að sjá myndirnar stórar.
BIÐUKOLLUR
- Hvað eru um það bil mörg fræ á biðukollu? Athugið nokkrar.
- Skoðið fræin undir stækkunargleri eða í víðsjá.
- Fylgist með hvernig fræin svífa um.
- Finnið biðukollu sem er að opnast og undirlagið hefur ekki enn breyst í kúlu.
- Skoðið vel undirlagið þegar öll fræin eru farin – notið víðsjá eða stækkunargler. Lýsið.





