Esja séð frá Reykjavík - (SH).

Upp, upp, upp á fjall…

Esja er fjall Reykvíkinga á því er ekki vafi. Útsýni til hennar skiptir borgarbúa máli og hún stendur þarna svipmikil og traust, skiptir litum eftir árstíðum og veðri, en veitir líka skjól, að minnsta kosti í sumum hverfum Reykjavíkur. Margir ganga upp á Esju eða að Steini. Lesa meira um Esju.

Önnur fjöll sem sjást frá Reykjavík:

  • Keilir, minnir á keilu.
  • Bláfjöll eru auðvitað blá þegar horft er á þau úr fjarlægð. Þar er Vífilsfell tignarlegast.
  • Úlfarsfell er á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Nett fjall (296 m), sem er gott fyrir unga fjallagarpa.
  • Akrafjall er bæjarfjall Akraness.
  • Skarðsheiði er mikið fjall og hrikalegt – en það langt í burtu að við sjáum illa skörðin.
  • Hengill er virk megineldstöð – þaðan kemur stór hluti af heita vatninu sem er nýttur á höfuðborgarsvæðinu.
  • Snæfellsjökull er eini jökullinn sem sést frá Reykjavík. Undir honum er megineldstöð!

Þau fjöll sem sjást frá tilteknum stað mynda fjallahring. Reyndar eru sumir staðir þannig að ekki sést til neinna fjalla. Frá öðrum stöðum er gott útsýni.

Leiðbeiningar um fjallaferðir og útivist má finna á vefsíðu Ferðafélags barnanna.

Tveir karlar í fjallgöngu og sá þriðji sem varð að steini! - (SH).
  • Horfið til fjallanna. Prófið að „ramma inn“ útsýni sem þið sjáið frá Reykjavík og þannig útbúa fallega landslagsmynd.
  • Hvaða fjöll þekkið þið?
  • Ef þið farið í fjallgöngu ættuð þið að skoða vel á korti leiðina sem þið farið og átta ykkur nákvæmlega á hvar fjallið er.
  • Lesið ljóðið Fjallganga eftir Tómas Guðmundsson skáld. Ætli sé svona erfitt að komast á toppinn?

Alltaf ætti að taka svolítið súkkulaði með í fjallgöngu!

KENNARAR / FULLORÐNIR

Útsýni og hringsjár

Hér er listaverk – náttúrunnar list, þar sem útsýnið hefur verið rammað inn. Má auðvitað gera á einfaldari hátt. (Einnig má leggja ramma á jörðina til að afmarka rannsóknarsvæði eða listræna náttúrusmíð sem nær okkur er.)

Í Reykjavík eru nokkrar hringsjár: við Klepp, í Viðey, í Perlunni, á Úlfarsfelli (sem er á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar), á Þverfellshorni (á Esju) og jafnvel víðar – HAFA SAMBAND

Náttúrunnar listaverk - (ÁH).

Ágætt verkefni væri að skoða hringsjár og sjá hvernig þær virka – einnig að útbúa eigin hringsjá.

Annað verkefni væri að teikna eða mynda fjallahring og merkja fjöllin á myndinni. Hafa svo myndina fyrir augunum uppi á vegg. Þar með lærast nöfn fjallanna.

Fjallgöngur 

Hvetja ætti krakka til þess að ganga á fjöll. Æskilegt er að þeir kynnist fjallaferðum bæði í skóla og með fjölskyldu. Gott að deila frásögnum og myndum, öðrum til hvatningar.

Tónlist og fjallganga

Viðfangsefni í tónlist: Lagið Upp, upp, upp á fjall endurspeglar skýrt taktinn í raunverulegri fjallgöngu.

Ljóð Tómasar Guðmundssonar, Fjallganga, hefur líka ákveðna hrynjandi.
Tómas Guðmundsson er skáldið sem situr á bekk við Tjörnina í Reykjavík (stytta). Hann er oft nefndur Reykjavíkurskáldið.

Lag Ólafs Hauks Símonarsonar (á myndbandi) er ljúft og textinn kallar fram líflegar myndir. Hvað er ströng fjallganga?