Ánamaðkar

  1. Hvenær og hvar sjáið þið oftast ánamaðka?
  2. Prófið að láta ánamaðk skríða í lófanum.
  3. Skoðið ánamaðk mjög nákvæmlega.
    • Ánamaðkar eru með stinn hár, fjögur pör á hverjum lið. Þau sjást ekki vel, en hægt er að finna fyrir þeim ef þið rennið fingrum létt eftir endilöngum búknum. Ef maðkur er látinn skríða eftir blaði heyrist í hárunum.
    • Kynþroska ánamaðkar eru með þykkildi um sig, eða gjörð.
    • Liðir eru áberandi einkenni ánamaðks.
  4. Setjið mold, leir og einhver lauf í krukku eða ormabúr og síðan ánamaðka. Fylgist með ferðum þeirra og eins hvort eða hvernig jarðvegurinn blandast.
  5. Fylgist með þegar fuglar éta ánamaðka á grasflöt. Meiri líkur eru á að sjá það gerast þegar rignir eða þegar grasið hefur verið nýlega slegið.
    • Lýsið aðstæðum.
    • Hvaða fugl sjáið þið éta ánamaðk? – Hvernig fer hann að?

Fólk, sem ræktar, er ánægt þegar mikið er um ánamaðka í jarðveginum. Ánamaðkar eiga nefnilega stóran þátt í að mynda góða gróðurmold.

Ánamaðkar:

  • flýta fyrir rotnun lífrænna efna
  • bæta samsetningu jarðvegs, þeir blanda lífrænum efnum og ólífrænum
  • auka loftrými í moldinni
  • bæta flæði vatns um moldina
  • mynda pláss fyrir rætur plantna

Ánamaðkar ferðast í gegnum jarðveginn. Stundum er hann svo þéttur að þeir þurfa að éta sig í gegnum hann. Annars pota þeir sér áfram með því að gera fremsta hluta líkamans mjóan en þenjast svo út og mynda þá göng. Burstahárin hjálpa maðkinum að ná taki svo hann renni ekki til.

Oft má sjá skítahrúgur frá ánamöðkum á yfirborði jarðvegs og víðar.

Göngin sem ánamaðkar mynda í jarðveginum eru bein og lóðrétt efst en þegar neðar dregur verða þau meira á ská og skjön.

Hreyfing ánamaðks í gegnum jarðveg - skýringarmynd - (SH).

Þemahefti um ánamaðka – 2017, Menntamálastofnun.

Fuglar heyra ákaflega vel og geta greint hljóðtíðni sem nær nokkuð út fyrir þau mörk sem mannseyrað greinir. Fræðimenn telja því líklegt að fuglar geti einfaldlega heyrt í smádýrum sem skríða um í jarðveginum. Heyrn fuglanna sé svo næm að þeir geti staðsett ánamaðkinn eða skordýrið og stungið gogginum niður nákvæmlega á þeim stað sem dýrið er og veitt það. (Sjá Vísindavefinn)

Sniglar

Sniglar eru ekki eins velkomnir í garðana og ánamaðkar. Sniglarnir éta nefnilega ýmislegt það sem verið er að rækta svo sem kál og salat. Almennt eru sniglar jurtaætur og sumir lifa á rotnandi leifum.

Landsniglar eru ýmist með kuðung eða án kuðungs.

Sniglar án kuðungs eru algengir í görðum. Þeir eru viðkvæmir fyrir þurrki, enda hafa þeir ekki skel að skríða inn í. Þeir eru helst á ferð á nóttunni eða á rigningardögum. Yfir daginn finna þeir sér skjól undir einhverju eða inni á milli laufblaða til að þeir þorni ekki upp.

Sniglar með kuðung eru sjaldséðari en það er alltaf gaman að rekast á þá.

Skoðið snigil vel

  • takið eftir áferðinni á honum
    • skoðið líka fótinn (neðsta hlutann)
  • látið snigil skríða á gleri og horfið á hann neðan frá
  • er snigillinn með eða án kuðungs?
    • skoðið kuðunginn
    • skoðið möttulinn og öndunaropið
Geislabobbi á stofuglugga í Reykjavík - (SH).
Lyngbobba fer fjölgandi í Reykjavík - (SH).
Étið kálblað - (SB).
Brekkusnigill - (SH).

Ofan á fremri hluta líkama snigils, má sjá þykka húðfellingu, möttul. Undir möttlinum er holrúm og á honum er vel sýnilegt op, öndunarop. Í húðfellingunni er nefnilega mjög þétt æðanet sem virkar eins og lungu.

Sniglar sem lifa í fersku vatni eða á landi hérlendis eru lungnasniglar. Aðrir sniglar eru með tálkn.

Sniglar eru með tungu sem er alsett tönnum - (WmC).

KENNARAR / FULLORÐNIR

Hvar eru ánamaðkar og við hvaða aðstæður?

Auðveldast er að finna ánamaðka ofan í beðum. Nota gaffal eða skóflu til að stinga upp og komast að þeim.

Ánamaðkar forðast birtu – gott að leita þegar skugga tekur. Þá geta þeir verið komnir upp á yfirborðið. Vera með vasaljós.

Þegar er rigning leita ánamaðkar ofar í jarðveginn, enda fyllir vatnið upp í göngin. Ánamaðkar þurfa loft til að anda að sér.

Ánamaðkar í tímaritinu Náttúrufræðingnum

Grein um ánamaðka í Náttúrufræðingnum. 

Moltugerð

Hægt er að útbúa moltu heima hjá sér, eða í skólanum, með hjálp ánamaðka. Sjá grein í Bændablaðinu og frásögn úr Víkurskóla.

Ormabúr

Hugsanlega er til ormabúr í skólanum. Þau voru seld í Námsgagnastofnun á sínum tíma. Þau henta vel til að fylgjast með hvernig maðkarnir blanda jarðveginum og eins hvernig þeir ferðast um í moldinni.

Glerkrukkur geta að sjálfsögðu líka dugað til alls konar tilrauna.

Unnið með ormabúr - (AS).
Kannski væri hægt að smíða ormabúr? - (SH).