Börn og fullorðnir
Efnið er skrifað fyrir stálpuð börn á grunnskólaaldri og aðra áhugasama um umhverfið og náttúruna í Reykjavík. Vefurinn er hugsaður þannig að börn vinni með hann í samstarfi við fullorðna, hvort sem það eru kennarar, leiðbeinendur í frístundastarfi, foreldrar eða aðrir ættingjar og vinir.
Víða er orðum beint til kennara eða hinna fullorðnu í samhengi við efnið. Þessar hugleiðingar fela oft í sér dýpri efnislega umfjöllun, hugmyndir um verkefni eða nálgun. Umfjöllunin birtist ef smellt er á hnapp, sem lítur svona út og er neðst á viðkomandi vefsíðu.
Reglulegar færslur – lifandi vefur
Reglulega birtast fréttir eða færslur á vefnum og er fólk hvatt til að gerast áskrifendur. Með áskrift, sem er öllum að kostnaðarlausu, er sendur tölvupóstur til viðkomandi þegar ný frétt eða færsla er sett inn.
Ítarleg umfjöllun um vefinn – KENNARAR
Þarna má lesa almenna umfjöllun um vefinn og kennsluleiðbeiningar einkum ætlaðar kennurum, þar sem meðal annars er tengt við grunnþætti menntunar og aðalnámskrá grunnskóla.