Hafið er hluti af Reykjavík.

Inn af Faxaflóa eru nokkrir firðir. Kollafjörður og Skerjafjörður liggja að Reykjavík. Þar eru víða sker en einnig eyjar sem búið var í áður fyrr.

Orðið sund þýðir mjótt svæði hafs (eða vatns) á milli landa eða eyja. Ef til vill kannist þið við Viðeyjarsund? Oft er talað um Sundin blá og borgina við Sundin. Þá er verið að vísa til hafsvæða sem liggja milli eyja, skerja og hólma í Kollafirði.

Hafið og eyjarnar eru mikilvægur þáttur í náttúru Reykjavíkur. Öldur hafsins eru meira að segja í skjaldarmerkinu.

Lesa um Eyjar á Sundum

Nes, tangi, skagi, grandi, sker, eiði, vík, vogur, fjörður, flói eru allt orð sem lýsa lögun strandar. Hvað þýða þau?

Skólakrakkar við Ægisíðu - (SH).
Firðir, eyjar og vogar (unnið úr map.is - SH)
  1. Skoðið vel loftmyndina og festið í minni örnefnin. (Þess skal getið að eiði liggur út í Geldinganes sem ekki sést á myndinni.)
  2. Horfið út á Sundin og athugið hvort þið sjáið eyjarnar og getið nafngreint þær.
  3. Örfirisey getur ekki lengur talist eyja því hún er áföst landi með landfyllingu. Þar er landið frekar ferkantað! Leitið að Örfirisey á borgarvefsjánni og skoðið strandlengjuna. Prófið að skoða >Þekjur< frá mismunandi tímum undir >Saga og þróun<.
  4. Hugsið um allt það sem væri öðruvísi ef Reykjavík væri ekki við sjó!
  5. Kynnið ykkur Sundabraut. Hvar er fyrirhugað að leggja hana? Getið þið séð kosti við hana? Getið þið séð galla við hana? Ræðið og skráið.
  6. Hvað einkennir þann sem er landkrabbi?