Fréttir, Lífríki

Svartar rauðhumlur!

Í vor birtist frétt hér á vefnum um humlu sem var alsett humlumítlum.  Í dag heyrum við um rauðhumlu sem ekki er rauð!

Fólk hefur tekið eftir flugum, víðs vegar í Reykjavík, sem eru svartar en líkjast að öðru leyti humlum. Sérfræðingar hafa tegundagreint þessar flugur og er um að ræða rauðhumlur með óvenjulega mikið svart litarefni. Að auki segja þeir að þeim svörtu sé að fjölga hér  hlutfallslega. Talað er um svart afbrigði rauðhumlunnar.

Svona svartar rauðhumlur eru þekktar erlendis til dæmis í norðanverðri Mið-Evrópu og eins hafa þær sést í Færeyjum.

Svart afbrigði rauðhumlu á hvönn – (Árni Einarsson)

Humlur eru meinlausar og stinga aðeins í neyð, t.d. ef verið er að reyna að handsama þær.

Rauðhumla á hvönn – (Árni Einarsson).

Rauðhumlur eru annars nýlegir landnemar á Íslandi. Fyrsta flugan fannst árið 2008, nokkrar 2009, en árið 2010 bárust þó nokkrar tilkynningar um þær til Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Þess má geta að höfundur vefs um náttúru Reykjavíkur, sá rauðhumlu fyrst, með eigin augum, árið 2012 og flaug hún inn um gluggann hjá henni í Vesturbæ Reykjavíkur um miðjan júlí. Þetta var sérstakur gestur sem var myndaður í bak og fyrir, og greindur til tegundar áður en honum var sleppt aftur út!

Rauðhumlan í eldhúsglugganum - (SH).
  • Hvernig ætli rauðhumla hafi borist til Íslands?
  • Þið kannist eflaust við að svartur litur dregur betur í sig hita sólarinnar en ljósari litir. Ætli það sé kostur fyrir rauðhumluna að vera svört og heitt þegar sólin skín?

Humla er annað orð yfir hunangsflugu.
Humlur eru af býflugnaætt.
Býflugur eru sömu ættar, en þær lifa ekki villtar á Íslandi. Sumir rækta þó býflugur, eru með býflugnabú og framleiða hunang.