Mengun verður af mannavöldum og getur haft áhrif á lífríkið og heilsufar fólks.

Til er alls konar mengun: sjónmengun, olíumengun, loftmengun, hávaðamengun, varmamengun, jarðvegsmengun, vatnsmengun…

  • Hvers konar mengun má tengja við myndirnar?

  • Hafið þið orðið vör við mengun í Reykjavík? – Hvernig getið þið brugðist við ef þið takið eftir mengun? Setjið niður áætlun.

  • Hvernig má koma í veg fyrir mengun?

Útblástur og svifryk frá bílum || rusl || rusl – (SH). 

Glósur af námskeiði um vistvænan lífsstíl - (SH).

Úrgangur

Ef hlutur verður ekki endurnýttur er mikilvægt að koma honum í endurvinnslu. Mikilvægt er að flokka sorp. Með því er hægt að nota hráefnin lengur og draga úr ágangi á náttúruauðlindirnar. Ef vel er flokkað verður lítið rusl eftir til að urða og þar með minni mengun.

Spilliefni eru mjög slæm fyrir umhverfið og þau mega ALDREI fara í urðun.

Þegar rusl er urðað er það grafið í grýtta jörð / urð.

Á vef Sorpu eru leiðbeiningar um flokkun.

  • Farið yfir glósurnar og íhugið hvern lið fyrir sig. Skráið það sem kemur í hugann.
  • Getið þið bætt við listann?

KENNARAR / FULLORÐNIR

Listi yfir hvernig má draga úr sóun

Dæmi um hverju mætti bæta við listann:

  • Útbúa moltu úr lífrænum afgöngum

  • Þora að gefa notað í afmælis- og jólagjöf!

Mengun

Hugsanlegt verkefni um mengun: Fara yfir viðfangsefni hversdagsins með það í huga hvort þau feli í sér að menga:

  • þvottur og þvottaefni
  • akstur
  • léleg flokkun sorps
  • rusl á víðavangi
  • notkun eiturs (skordýr – illgresi – stíflulosun)