Selir eru sjávarspendýr.
Vonandi sjáið þið einhvern tímann raunverulega lifandi seli við strendur Reykjavíkur, eða annars staðar. Neðst á síðunni eru spurningar sem hjálpa ykkur að skoða þá vel og fylgjast með þeim.
Við strendur Íslands kæpa tvær tegundir sela: landselur og útselur. Bæði land- og útselur eru á válista. Landselur er í bráðri hættu og útselur í hættu.
Selir kæpa ekki í Reykjavík eða nágrenni, enda of mikil truflun á þeim slóðum. Þeir eru viðkæmir fyrir ónæði. En selir eiga það til að þvælast um Sundin bláu. Alltaf er gaman að sjá þá – og stundum mætti halda að þeir hafi gaman af að fylgjast með fólkinu uppi á landi. Hvað haldið þið?
brimill – karlkyns selur
urta – kvenkyns selur
kópur – afkvæmi sela
Hér er fræðandi efni um seli:
-
Vefur Náttúrufræðistofnunar Íslands – skoðið sérstaklega kortasjá.
-
Fjaran og hafið – vefur. – Skoðið myndband þar sem urta kæpir (=eignast afkvæmi).
- Hvað skal gera þegar synt er í sjónum og selir nálgast? – Vísindavefurinn


Á vettvangi
Fylgist vel með sel sem er úti í sjó eða upp á landi. Eftirfarandi spurningar hjálpa ykkur að gera það markvisst.
-
Hvað er hann að gera?
-
Sér selurinn eða heyrir í ykkur? Hvernig vitið þið það? Prófið að spila fyrir hann á hljóðfæri, t.d. flautu.
-
Sjáið þið hann éta? Hvað ætli selir éti?
-
Flestum finnst selir fallegir. Hvað er fallegt við þá? Hvernig eru þeir á litinn?
- Eru selir með hendur eða fætur?
-
Líklega sjáið þið selinn fara í kaf. Takið tímann hvað hann er lengi og hversu oft hann fer í kaf. Hugsanlega mætti finna meðaltímann. Gerir hann eitthvað annað?
-
Hvað ætli selir sjái neðansjávar?
-
Sjáið þið seli á landi (í fjöru eða á skeri)? Lýsið hreyfingum þeirra eða hermið eftir þeim.
-
Ef þið sjáið fleiri en einn sel, takið þið þá eftir einhverjum samskiptum þeirra á milli?
-
Getið þið greint hvort um er að ræða brimla, urtur eða kópa?
KENNARAR / FULLORÐNIR
Selir koma alltaf af og til að ströndum Reykjavíkur. Höfundur hefur séð þá við Ægisíðu og Skerjafjörð og algengt er að sjá þá á skerjum í Blikastaðakró neðan Staðarhverfis í Grafarvogi.
Í framhaldinu af verkefnum hér að ofan mætti gera eftirfarandi (eftir þroska og stöðu barnanna):
-
Skoða ýtarefni um seli – leggja áherslu á að skoða og ræða um myndir.
-
Leika seli og líkja vel eftir þeim. Fara fyrst yfir hvað selir gera.
-
Teikna selafjölskyldu. Fara fyrst yfir útlitsmun kynja og afkvæma.
-
Birta niðurstöður athugana í skýrslu eða sem skjásýningu.
-
Kanna kortasjá sem sýnir selalátur við Ísland á vef Náttúrufræðistofnunar.
-
Útbúa fræðslubækling um seli.
