Fyrir um það bil þremur milljónum ára hófst ísöld og hún stendur enn. Á jökulskeiðum hennar mynduðust miklir jöklar sem huldu heilu löndin. Á hlýskeiðum ísaldar bráðnuðu jöklarnir og hurfu jafnvel alveg. Þá tók lífríkið kipp. Þannig hafa skipst á jökulskeið og hlýskeið. Álitið er að hvert jökulskeið standi í 80-100.000 ár en hlýskeiðin í 10-20.000 ár.

Við lifum á hlýskeiði*. Síðasta jökulskeiði lauk fyrir um það bil 10.000 árum. Á síðasta jökulskeiði huldi jökull nær allt Ísland og Reykjavíkursvæðið þar með!

*Loftslagsbreytingar af mannavöldum bætast ofan á hlýskeiðið sem við lifum núna.
Ís á norðurhveli, þegar síðasta jökulskeið var í hámarki - (HB).
  1. Horfið í kringum ykkur í Reykjavík. Sjáið þið ávalar hæðir?
  2. Setjið fingurna í hlutverk þykks jökuls og mótið dali og firði í leir.
    Prófið svo að setja leirinn að hluta ofan í grunnt vatn sem á að tákna sjóinn. Hvar liggur þá ströndin?
  3. Skoðið myndina af grjóthnullungunum. Hvernig tengjast grettistök jökli?
  4. Hafið þið komið nálægt jökli? Segið frá!
  5. Skrifið sögu / frásögn af manninum sem sést við jökulinn á myndinni.

Hér voru jöklar!

Við skríðandi jökul - (SiR).

Nálægt jökli er skrýtið andrúmsloft!

Hljóðheimurinn er líka sérstakur!

Merki eftir jökulinn

Í Reykjavík má víða sjá merki eftir ísaldarjökulinn. Jöklar hreyfast, taka með sér urð og grjót sem á vegi þeirra verður og skila annars staðar. Það er kraftur í jöklum og séu þeir stórir og þungir geta þeir grafið út heilu dalina og djúpa firði. Jöklar pússa hæðir og lægðir og gera þær ávalar. Það er hið dæmigerða Reykjavíkurlandslag.

Dæmi um staði með áberandi jökulminjum: Elliðaárdalur, Laugarás, Öskjuhlíð, Fossvogsbakkar, Nauthólsvík, Rauðavatn og Skildinganeshólar.

Grettistök á holti austan Rauðavatns - (SH)

KENNARAR / FULLORÐNIR

Hugtök

Oft var/er hugtakið ísöld notað um jökulskeið. Látið það ekki rugla ykkur!

Jökullandslag

Myndband sem sýnir jökulrof og -veðrun (á ensku).

Hæðir í Reykjavík: Skólavörðuholt, Landakotshæð, Laugarás, Rauðarárholt, Keldnaholt, Grafarholt, Breiðholt, Bústaðaháls og Grensás.

„Stór jökulborin björg nefnast grettistök.“ Á Vísindavefnum er umfjöllun um grettistök. Myndin af grettistökum er tekin á hæðum rétt austan við Rauðavatn.

Leirklumpurinn

Verkefnið um leirklumpinn má taka mislangt eftir því hvar nemendur eru á vegi staddir í námi. Fara mætti nákvæmlega út í áhrif jökla og pæla t.d. í grettistökum, jökulgörðum, U laga dölum, skessusætum, tindum á milli tveggja dala o.s.frv. Einnig mætti leitast við að gera líkan af þekktum stað.