Jökulrákir

Við sjáum mjög víða merki um ísaldarjöklana í Reykjavík. Sjáið grjótið á myndinni. Á þeim eru skýrar rendur, jökulrákir.

Rákirnar myndast í bergi þegar jökull skríður yfir það. Jökullinn ber með sér urð og grjót og skrapar með því undirlagið. Jafnvel harðir klettar rispast.

Jökulrákirnar segja til um í hvaða átt jökullinn skreið. Jarðfræðingar hafa fundið jökulrákir í Reykjavík frá þremur mismunandi jökulskeiðum og er stefna þeirra svolítið mismunandi.

Þetta er líkt og þegar pússað er með sandpappír.

Óvenju skýrar jökulrákir við Sörlaskjól - (SH).

Hvalbök

Jökulmáðar klappir eru sumar kallaðar hvalbök, enda minna þær á bak á hval. Hvalbök eru þannig að hliðin sem snéri á móti skriðstefnu jökulsins, þar sem jökullinn mæddi mest á, er fremur slétt og aflíðandi. Hin hliðin er hins vegar stöllótt og hrjúf, enda hefur jökullinn náð að hrifsa með sér hluta úr berginu þeim megin.

Hvalbak - (WmC).
Dæmigert hvalbak - (SH).
  • Skoðið jökulmáðar klappir í Reykjavík – þær er jú víða að finna. Sjáið þið jökulrendur og sjáið þið hvalbök?
  • Búið til líkan sem á að sýna hvernig jökulrákir og hvalbök verða til.

Merkileg náttúrufyrirbæri

Ísjakar á jökullóni - (SH).

Að ímynda sér jökul fyrir tíu þúsund árum skrapa og pússa grjótið sem við stöndum á í Reykjavík fylgir sérstök og óraunveruleg tilfinning.

Telja má öruggt að jökulsorfnar klappir hafi verið sjáanlegar í borginni víðar áður fyrr. Sumar hafa horfið undir gróður, en einhverjar hefur þurft að sprengja og mylja á húsalóðum og vegastæðum. Það er leiðinlegt en við getum kannski ekki verndað allt, en það er mjög mikilvægt að eiga góð sýnishorn.

Listaverk

Í Litlu Öskjuhlíð er listaverk þar sem jökulmáðar klappir eru í aðalhlutverki.

KENNARAR / FULLORÐNIR

Staðir þar sem gott er að skoða jökulrákir:

Öskjuhlíð – Litla Öskjuhlíð (við Veðurstofuna) – Nauthólsvík – við Barónsstíg við göngustíg sem liggur upp að Hallgrímskirkju, gegnt Leifsgötu – við horn Suðurgötu og Hjarðarhaga – í Skildinganeshólum – í fjörunni við Sörlaskjól – við Árbæjarsafn (tvíátta rispur) – á Gufuneshöfða – við Hrafnistu og Laugarásbíó – vestan við Rauðavatn og víðar.

Í Litlu Öskjuhlíð er listaverk.
Jökulminjar á Veðurstofureitnum.  Helgi Björnsson jöklafræðingur kemur þeim til varnar (Mbl.)

Myndin er fengin úr Aðalskipulagi Reykjavíkur sem liggur á netinu. Græna borgin. https://reykjavik.is/sites/default/files/adalskipulag/08-graena_borgin.pdf