Rigning - (SH).
Sólskinsdagur - (SH).
Þoka - (UÞJ).

Veðurfar í landi Reykjavíkur er misjafnt enda er svæðið stórt og aðstæður fjölbreyttar.

Meðal þess sem skiptir máli er sjórinn, t.d. nálægð við hann og hitastig hans. Sömuleiðis skiptir máli hvernig landslagið er og hæð yfir sjávarmáli.

Hiti: Júlímánuður er heitasti mánuðurinn og janúar sá kaldasti. Meðalhiti í Reykjavík er hærri en á Norðurlandi og Austurlandi. Munur á hitastigi sumars og veturs í Reykjavík er með því minnsta á landinu.

Úrkoma: Rigning er algengasta úrkoman í Reykjavík. Mest rignir í október til janúar en minnst í maí og júní.

Vindur: Algengast er að vindar í Reykjavík blási úr austri. Sjaldan er logn og oft kemur hafgola á hlýjum sumardögum.

Veðurathuganir

  1. Berið saman hitastig dagsins í dag hér á línuritinu og svo á skíðasvæðinu í Bláfjöllum.
  2. Skiptist á að taka veðrið á hverjum degi í nokkurn tíma. Skráið hitastig, vindstyrk og -átt, skýjafar og úrkomu.
  3. Skoðið línuritin hér á síðunni sem sýna veðrið síðasta sólarhringinn í Reykjavík (flugvellinum). Hvenær komu mestu vindhviðurnar? Hvenær var hitinn hæstur og lægstur? Skoðið hvenær raki loftsins var mestur og berið saman við daggarmark á myndinni í miðjunni. Pælið almennt í myndunum.
  4. Takið myndir í Reykjavík sem sýna alls konar veður.

Línuritin sýna veðrið á Reykjavíkurflugvelli, síðasta sólarhringinn. Upplýsingarnar eru fengnar beint af vef Veðurstofu Íslands:

Rauða línan sýnir vindhraða og sú brúna hviðurnar.
Rauða línan sýnir hitastig. Daggarmark (bláa línan) gefur til kynna við hvaða hitastig raki myndast í andrúmsloftinu.

Ef maður klæðir sig rétt er gott veður!

Mér finnst samt stundum best að vera inni!