Fjaran er sérstakt vistkerfi sem er á mörkum tveggja mjög ólíkra vistkerfa.
Mælt er sérstaklega með þessu efni til þess að lesa um og glöggva sig á lífríki fjörunnar þegar farið er í vettvangsferð:
- Bókin Fjörulíf.
- Greiningarlyklar um smádýr.
- Fræðsluvefurinn Fjaran og hafið.
Fuglar í fjörunni
Við sjóinn eru oft margir fuglar af ýmsum tegundum, enda er þar fjölbreytt og mikið æti allan ársins hring.
Þegar farfuglar koma til landsins staldra þeir gjarnan við í fjörunni áður en þeir halda lengra. Á haustin safnast þeir einnig í fjörurnar til að éta vel og safna orku fyrir flugið. Sumar fuglategundir halda sig þó alltaf meira og minna við ströndina.
Fjörur Reykjavíkur eru víða skjólsælar og sums staðar renna lækir og jafnvel ár til sjávar. Hvoru tveggja getur laðað að fugla.
Hér er listi yfir fugla sem þið gætuð hugsanlega séð við ströndina:
- tjaldur
- sandlóa (vor og haust)
- heiðlóa (vor og haust)
- stelkur
- jaðrakan
- spói
- lóuþræll
- sendlingur (mest að vetrarlagi)
- rauðbrystingur
- tildra
- kría
- skarfur
- máfar þar á meðal svartbakur, sílamáfur, hettumáfur
- álft
- æðarfugl
- margæs
- grágæs
- gargönd
- toppönd
- skúfönd
- rauðhöfðaönd
- hávella
- stokkönd
- stari
- í eyjunum og á Kjalarnesi eru björg við sjó og þar má sjá bjargfugla, t.d. fýl, ritu og lunda.
Lærið um fuglana sem þið sjáið við sjóinn:
- Kannski getið þið skipt með ykkur fuglunum og kynnt ykkur einn sérstaklega og sagt frá honum, eða safnað saman upplýsingum frá öllum krökkunum í hópnum og birt í ykkar eigin fuglabók.
- Fylgist vel með fuglunum. Hvar nákvæmlega eru þeir og hvað eru þeir að gera?
- Gaman er að fylgjast með þegar fuglar finna sér eitthvað í gogginn til að éta, þegar þeir gera sér hreiður, finna maka og æxlast, hugsa um ungana sína, hópa sig og svo framvegis… Á fuglavefnum er leiðbeint um fuglaskoðun.
- Reynið að greina fuglana til tegundar og lesið um þá í fuglabók eða á fuglavefnum.
- Þegar fjarar út er oft mest um fugla – hvers vegna?
- Gerið listaverk sem heitir Fuglinn í fjörunni. Ef vel tekst til ættuð þið að senda mynd sem gæti birst á vefnum.
KENNARAR / FULLORÐNIR
Fjaran er það búsvæði þar sem lífbreytileikinn er hvað mestur á Íslandi.
Hrefna Sigurjónsdóttir 2014. Fjaran, vettvangur náms til sjálfbærni. Náttúrufræðingurinn 84(3–4). 141–149.


