Móberg
Móberg verður til í gosi undir jökli þar sem gosopið er nálægt yfirborðinu þannig að kvikan nær í gegn. Eldgosinu fylgir mikill hávaði og gufusprengingar. Þegar kvikan kemur upp breytist hún í ösku sem hleðst upp við eldstöðina. Vatn gengur í samband við öskuna þannig að hún límist saman og þjappast í fast berg sem kallast móberg.
Þótt móberg sé fast berg er það samt mjúkt og vindurinn getur sorfið í það ótrúlegustu myndir.
Móbergið hér í nágrenni Reykjavíkur hefur orðið til á jökulskeiðum ísaldar, þegar jökull var á svæðinu.
Móberg er algengt á Íslandi – af hverju ætli það sé?
Skoðið móberg!
- Athugið áferðina og hvort þið sjáið korn í berginu.
- Hvernig er bergið á litinn?
- Hefur vindurinn mótað það?
- Sjáið þið eitthvað líf á eða við grjótið? Hvernig?
- Takið mynd eða málið mynd.
- Semjið sögu þar sem móbergsklettar koma fyrir, kannski trölla-, álfa-, eða huldufólkssögu.
Myndir af móbergi – (SH, SH, SH, SvH).
Merki um eldgos undir jökli nálægt Reykjavík má til dæmis sjá á Hengilssvæðinu. Þar er áberandi móberg.
KENNARAR / FULLORÐNIR
Bólstraberg
Bólstraberg og kubbaberg verður einnig til undir jökli, eða á hafsbotni. Kvikan kemst þó ekki upp á yfirborðið líkt og hjá móberginu vegna þess að dýpra er á hana. Kvikan þrýstir sér út og myndar eins konar hnykla eða bólstra sem vaxa hver utan um annan.
Á myndinni má sjá gráa bólstra í brúnleita stórgrýtinu. Myndin er tekin í fjörunni á milli Geldinganeseiðis og kvikmyndavers í Gufunesi.
Móberg
Móberg er mjög algengt á Íslandi enda fer hér saman eldvirkni og mikil útbreiðsla jökla, einkum á jökulskeiðum.
Móberg er áberandi á Hengilsvæðinu. Eins má sjá móberg í Viðey, nálægt Geldinarnesi og Gufunesi og tengist það Viðeyjareldstöðinni. – Móberg verður ekki bara til undir jökli, heldur einnig á vatns- eða hafsbotni.
Krot
Móberg er auðrjúfanlegt. Sums staðar má sjá hvernig fólk hefur krafsað í móberg og kannski skrifað eitthvað eða teiknað. Mennirnir ættu ekki að skilja eftir sig slík ummerki.
Um að gera að ræða málið með krökkunum. Hvað er eftirsótt við óspillta náttúru?




