Vatna- og mýrargróður er aðlagaður því að lifa í vatni.
Þetta birtist á ýmsan hátt:
Mikið yfirborð
Plöntur sem eru algjörlega á kafi í vatni ná ekki að anda að sér súrefni úr loftinu heldur verða að taka það úr vatninu ásamt koltvísýringi. Mikið yfirborð vatnaplantna gerir þeim þetta kleift.
Fljótandi laufblöð
Aðrar vatnaplöntur eru með laufblöð sem fljóta á yfirborði vatnsins og geta í gegnum þau nálgast efni andrúmsloftsins vandræðalaust.
Eins konar loftæðar
Súrefni er einkar mikilvægt fyrir rætur plantna og sumar vatnaplöntur, sem eru að hluta til á kafi, eru með holrúm eftir endilangri plöntunni og niður í ræturnar sem gerir það að verkum að súrefnið nær þangað.
Fífa vex í votlendi og getur virkað eins og viðvörunarskilti! Nálægt henni er hætta á að blotna í fæturna.
Horblaðka vex sömuleiðis í votlendi og engjarós í mýri.
Þörungar
Í vötnum eru þörungar. Þeir ljóstillífa eins og plöntur en hafa ekki stöngul, rætur, blöð eða blóm. Aftur á móti geta þeir tengst saman og myndað eins konar sambýli sem að útliti minnir á plöntur.
Grjót í vatni er stundum sleipt vegna þörunga sem á því vaxa.
Orðið slý er notað um þörunga, einkum grænþörunga, sem raðast saman, þannig að þeir mynda strúktúr sem minnir á slepjulegar plöntur.
Á vettvangi
-
Horfið eftir vatnagróðri, líka þörungum, frá ár- eða vatnsbakka.
-
Hefur gróðurleifum skolað á land?
-
Skoðið vel plönturnar sem þið finnið og athugið sérstaklega hvernig þær eru aðlagaðar lífi í vatni. Kannski sjáið þið einnig landplöntur ofan í vatninu sem bendir til að vatnsborðið sé óvenjulega hátt.
-
Þreifið á grjóti. Er það sleipt? Sjáið þið þörunga?
KENNARAR / FULLORÐNIR
Plönturnar efst á síðunni (teiknaðar) lifa að stórum hluta, ef ekki alveg neðan vatnsborðs. Horblaðka vex einnig í standandi vatni; tjörnum, keldum og skurðum. Fífa og engjarós finnast í mjög blautum jarðvegi, en ekki á kafi. Algengar og auðþekkjanlegar.
Engjarós er með dumbrauð bikarblöð, en ekki græn eins og algengast er.
Fjallað er um vatnaplöntur í námsbókunum Líf á landi og Lífríkið í fersku vatni.
Aðlögun og þróun
Sérstök einkenni vatnaplantna er dæmi um aðlögun og þar með þróun.








