Þar sem sjór mætir landi…

Flestar fjörur má flokka sem grýttar fjörur eða setfjörur (set = efni sem sest til). Fjörur eru mjög fjölbreyttar og grýttar fjörur geta til dæmis verið lífmiklar þangfjörur eða líflitlar og brimasamar. Setið í setfjörum er misjafnlega gróft. Þannig er leir í leirum, sandur í sandfjörum og möl í malarfjörum.

Þótt öldurnar geti verið stórar og kröftugar í Reykjavík eru þær samt minni en ef Reykjavík væri fyrir galopnu hafi. Reykjavík stendur við sund og firði inn af Faxaflóa.

Undirlag fjara og hvort það er fast eða á hreyfingu ræður miklu um hvort og hvernig gróður vex þar.

Sérstakar aðstæður myndast þar sem ár renna til sjávar.

Skoðið myndirnar sem hér birtast ein af annarri og veltið fyrir ykkur aðstæðum á hverjum stað.

Fjölbreyttar fjörur: grýtt fjara, landfylling, leira og sandfjara – (SH).

Vistgerðir

Á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands má skoða ólíkar vistgerðir við sjávarsíðuna og á landi. Gott er að vita af þessum upplýsingum þegar þið viljið fræðast um ákveðna staði og eins geta kortin opnað augu ykkar fyrir stöðum sem áhugavert er að skoða.

Vistgerð er landeining sem býr yfir ákveðnum eiginleikum hvað varðar gróður, dýralíf, jarðveg eða undirlag og loftslag. Innan sömu vistgerðar eru aðstæður með þeim hætti að þar þrífast svipuð samfélög plantna og dýra.

Skoðið vistgerðakortasjána, veljið >Fjörur undir >Kortaþekjur, þysjið inn á Reykjavík og skoðið ykkur um.

Landfyllingar

Töluverður hluti strandlengjunnar á höfuðborgarsvæðinu eru landfyllingar. Tilgangur þeirra er venjulega að bæta við undirlendið og á þeim hafa risið hús eða þær tengjast hafnarsvæðum. Nýjar landfyllingar eru nánast líflausar og það tekur langan tíma fyrir þær að „gróa“, ef þær gera það þá nokkurn tímann.

Þegar grunnur var tekinn að nýjum Landspítala var efninu sturtað skammt frá Laugarnesi (sjá mynd hér að ofan). Við það skemmdist því miður fallegt útsýni til Viðeyjar.

Umfang landfyllinga á höfuðborgarsvæðinu - (GJ).

KENNARAR / FULLORÐNIR

Vistgerðir

Rætt um vistgerðaflokkun í þættinum Landanum.

Hér er sagt frá fjöruvistgerðum á vef Náttúrufræðistofnunar. Birt hér til upplýsinga fyrir kennara en ekki er mælt með að fara of djúpt í þessa flokkun með nemendum/börnunum.

Landfyllingar – ritgerð

BS-ritgerð frá Landbúnaðarháskóla Íslands: Guðrún Jensdóttir. 2018. Þróun strandlengjunnar í Reykjavík og nágrenni. Kortið er úr þessari ritgerð. Athugið að frekari landfyllingar hafa orðið síðan ritgerðin var skrifuð.