Fuglar

Eins og sést á myndinni eru miklar leirur í Grafarvogi. Hún sést best á fjöru. Fjöldi fugla sækir í Grafarvog enda mikið æti í svanga gogga. Leirurnar í Grafarvogi eru einkum mikilvægar á vorin og haustin fyrir farfugla (sem verpa innar í landi) og umferðarfarfugla (sem millilenda hér á leið sinni til Grænlands eða Kanada). Nánar er fjallað um umferðarfarfugla HÉR.

Grafarvogur innan Gullinbrúar er á náttúruminjaskrá en hefur ekki verið friðlýstur ennþá. Hann hefur þó fengið svokallaða hverfisvernd á vegum Reykjavíkurborgar. Mikilvæg fuglasvæði þarf að passa.

Í Grafarvogi er því gaman að skoða fugla og oft eru farnar þangað skipulagðar fuglaskoðunarferðir.

Fuglaskoðunarhús við Grafarvog - (SH).
Við botn Grafarvogs - (SH).

Leirur geta verið hættulegar, því hægt er að festast í leirnum. Þið megið ekki fara of langt frá landi.

Leirur ... og fjaran

Það er áhugavert að velta fyrir sér hvað það er sem fuglarnir sækja í úti á leirunni. Eflaust eru sandskeljar og sandmaðkur góðir bitar.

Þótt fuglarnir nái venjulega athyglinni í Grafarvogi er þar margt fleira að skoða. Í fjörunni upp við land má víða sjá grjót með þangi, hrúðurkörlum, og fjölbreyttum hryggleysingjum. Gaman er að skoða þar skeljar og kuðunga.

Straumur við Gullinbrú

Myndin er tekin af Gullinbrú - (SH).

Undir Gullinbrú myndast sterkur hafstraumur einkum á stórstraumsflóði þegar flæðir að og fjarar út. Þegar brúin var smíðuð var sett landfylling beggja vegna vogsins og þannig þrengt að leið hafsins.

Grafarlækur

Grafarlækur rennur í Grafarvog. Það er áhugavert að skoða hvernig er umhorfs þar sem hann rennur út í voginn. Það er eins og hann sé á eins konar svigi í leirunni. Hvernig ætli standi á því? Af hverju rennur hann ekki bara beint?

Í læknum sjást fiskar: Urriði, sjóbirtingur, áll og líklegast hornsíli.

Þar sem Grafarlækur rennur út á leiruna safnast oft fuglar, t.d. rauðhöfðaönd, stokkönd og ýmsir máfar.

Rennandi vatn, Grafarlækur - (SH).
  • Það er gaman að leika sér í læknum. Þið getið kannað strauminn og fylgst með strái eða blómi sem þið látið fljóta í læknum.
  • Gróðurinn þarna í kring er fjölbreyttur og gæti verið áhugavert að kanna hann.
  • Sjáið þið fiska?
  • Hvaða fugla sjáið þið?
Grafarlækur - (SH).

Gróður

Heilmikill trjágróður er í hlíðum umhverfis Grafarvog. Þar er heldur betur hægt að gera athuganir. Sjá nánar. 

Tilraunastöðin að Keldum

Við botn Grafarvogs eru Keldur. Þar er tilraunastöð í meinafræði sem tengist Háskóla Íslands. Þar hafa í gegnum tíðina verið ýmis dýr, svo sem hestar og sauðfé. Nú er breyting framundan þegar Keldnalandinu verður breytt í íbúðahverfi.

Ágætur staður til að skoða fjöruna er í nánd við kirkjuna (þar er líka gott að leggja bíl), fallegt er við Grafarlæk, fuglaskoðunarhúsið er sunnan vogsins innarlega.

KENNARAR / FULLORÐNIR

Auk þeirra fiska sem þarna eru taldir gæti verið þarna regnbogasilungur – hann á „rætur“ í eldisstöð í nágrenninu.

Ágætur staður til að skoða fjöruna er t.d. við kirkjuna í átt að botni Grafarvogs – nálægt Naustatanga, en þar var áður útræði, líklega í tengslum við Keldur og má sjá þar greinilegar hleðslur.