Fuglar
Eins og sést á myndinni eru miklar leirur í Grafarvogi. Hún sést best á fjöru. Fjöldi fugla sækir í Grafarvog enda mikið æti í svanga gogga. Leirurnar í Grafarvogi eru einkum mikilvægar á vorin og haustin fyrir farfugla (sem verpa innar í landi) og umferðarfarfugla (sem millilenda hér á leið sinni til Grænlands eða Kanada). Nánar er fjallað um umferðarfarfugla HÉR.
Grafarvogur innan Gullinbrúar er á náttúruminjaskrá en hefur ekki verið friðlýstur ennþá. Hann hefur þó fengið svokallaða hverfisvernd á vegum Reykjavíkurborgar. Mikilvæg fuglasvæði þarf að passa.
Í Grafarvogi er því gaman að skoða fugla og oft eru farnar þangað skipulagðar fuglaskoðunarferðir.
Leirur ... og fjaran
Það er áhugavert að velta fyrir sér hvað það er sem fuglarnir sækja í úti á leirunni. Eflaust eru sandskeljar og sandmaðkur góðir bitar.
Þótt fuglarnir nái venjulega athyglinni í Grafarvogi er þar margt fleira að skoða. Í fjörunni upp við land má víða sjá grjót með þangi, hrúðurkörlum, og fjölbreyttum hryggleysingjum. Gaman er að skoða þar skeljar og kuðunga.
Grafarlækur
Grafarlækur rennur í Grafarvog. Það er áhugavert að skoða hvernig er umhorfs þar sem hann rennur út í voginn. Það er eins og hann sé á eins konar svigi í leirunni. Hvernig ætli standi á því? Af hverju rennur hann ekki bara beint?
Í læknum sjást fiskar: Urriði, sjóbirtingur, áll og líklegast hornsíli.
Þar sem Grafarlækur rennur út á leiruna safnast oft fuglar, t.d. rauðhöfðaönd, stokkönd og ýmsir máfar.
Gróður
Heilmikill trjágróður er í hlíðum umhverfis Grafarvog. Þar er heldur betur hægt að gera athuganir. Sjá nánar.
Tilraunastöðin að Keldum
Við botn Grafarvogs eru Keldur. Þar er tilraunastöð í meinafræði sem tengist Háskóla Íslands. Þar hafa í gegnum tíðina verið ýmis dýr, svo sem hestar og sauðfé. Nú er breyting framundan þegar Keldnalandinu verður breytt í íbúðahverfi.
Ágætur staður til að skoða fjöruna er í nánd við kirkjuna (þar er líka gott að leggja bíl), fallegt er við Grafarlæk, fuglaskoðunarhúsið er sunnan vogsins innarlega.
KENNARAR / FULLORÐNIR
Auk þeirra fiska sem þarna eru taldir gæti verið þarna regnbogasilungur – hann á „rætur“ í eldisstöð í nágrenninu.
Ágætur staður til að skoða fjöruna er t.d. við kirkjuna í átt að botni Grafarvogs – nálægt Naustatanga, en þar var áður útræði, líklega í tengslum við Keldur og má sjá þar greinilegar hleðslur.




