Suðurströnd Reykjavíkur er tiltölulega óröskuð. Þar er mikið fuglalíf, smádýr, þang og þari. Víða er fjaran grýtt en inn á milli eru sandfjörur og jafnvel svolitlar leirur.
Fjaran er verðmæt. Þar búa trilljónir lífvera, sem eiga sinn rétt – þar eiga þær heima.
Hún er líka verðmæt fyrir okkur mennina, því í fjörunni getum við auðveldlega rannsakað og kynnst lífverunum. Það er gaman og þar er sannarlega hægt að gleyma sér. Við ströndina er fallegt útsýni og skemmtilegt að hjóla. Reykjavík er ein af fáum höfuðborgum þar sem eru óraskaðar fjörur.
Það er spennandi að fara í fjöruferð og margt að skoða og gera. Smellið á hnappinn til að lesa um lífríki fjaranna og alls konar möguleg verkefni. Munið líka eftir að klæða ykkur rétt og taka með nauðsynlegan búnað, sjá Vettvangsferðir.
Suðurströnd fellur undir hverfisvernd, sem þýðir að þar þarf sérstaklega að vernda náttúruna. Hverfisvernd er ákveðin af Reykjavíkurborg.
Suðurströndin er hluti af stærra svæði sem er á náttúruminjaskrá. Sjá nánar.
Grásleppa og grásleppuskúrar
Við Ægisíðu eru gamlir skúrar (=kofar) sem haldið er við. Þarna var aðstaða fyrir menn sem fóru á sjóinn og veiddu fyrst og fremst grásleppu. Reyndar var einn skúrinn hænsnakofi.
Grásleppa er kvenkyns hrognkelsi. Karlkyns hrognkelsi er kallað rauðmagi. Upp úr áramótum kemur grásleppann upp að landi til að hrygna. Þá hefst veiðitímabil grásleppukarlanna. Sóst er eftir hrognunum, en þau minna á kavíar og eru eftirsóttur matur. Fiskurinn sjálfur er ekki lengur sérstaklega vinsæll til matar.
Lesa um hrognkelsi á vefnum Fjaran og hafið.
Fyrir framan grásleppuskúrana er auðvelt að lenda bátum. Þar er Grímstaðavör.
Björgun
Styttan sýnir mjög vel kraftinn sem þarf til að bjarga manni úr sjávarháska. Sjá má fyrir sér ákveðna hreyfingu sem nær frá hægri fæti mannsins sem er að drukkna upp í vinstri hönd þess sem er að bjarga honum. Listaverkið á mjög vel heima nálægt sjónum.
Ásmundur Sveinsson er höfundur styttunnar. Verk eftir hann eru víðar í borginni og hafa þau afgerandi stíl. Gaman er að heimsækja Ásmundarsafn.
Geirfuglinn
Íslendingar drápu síðustu tvo geirfuglana í heiminum. Fyrir það fengu þeir mikla peninga frá erlendum safnara. Geirfuglinn í fjörunni er steyptur úr áli. Til að framleiða ál þarf mikið rafmagn. Íslendingar hafa fórnað miklum náttúruauðlindum til þess að virkja og framleiða rafmagn fyrir álver. Listakonan, Ólöf Nordal, fær okkur til að hugsa. En um hvað?
KENNARAR / FULLORÐNIR
Geirfuglinn; Eldey og Straumsvík
Staðsetning styttunar á þessum stað er ekki tilviljun.
- Frá honum mátti lengi vel sjá í álverið í Straumsvík.
- Síðustu geirfuglarnir voru drepnir í Eldey. Geirfuglinn í fjörunni á að snúa í þá átt sem Eldey er. (Janúar 2025: staðsetningin er ekki nákvæmlega þannig, en það stendur til bóta skv. listakonunni.)
Landfyllingar
Hugmyndir eru uppi um landfyllingar í Skerjafirði – umfjöllun í Speglinum 8. febrúar 2022. HLUSTA. (Þótt umfjöllunin sé ekki ný eru þessar framkvæmdir enn á teikniborðinu.)
Verndun
Hverfisvernd
Innan borgarmarkanna eru fölbreytt náttúrusvæði sem skapa borginni ákveðna sérstöðu. Verndun náttúrusvæða er mikilvægur liður í því að viðhalda fölbreyttu lífríki og gróðurfari innan borgarinnar. Segja má að opnum svæðum sé skipt upp í annars vegar almenn útivistarsvæði og hins vegar í náttúruverndarsvæði sem falla undir ákvæði um hverfisvernd í aðalskipulagi. Þar er landnotkun takmörkuð og framkvæmdum haldið í lágmarki. Afmörkun hverfsverndarsvæða ræðst af úttektum á náttúrufari og lífríki og skal við afmörkun stefnt að því að viðhalda náttúrufari, ríkjandi landslagi og búsvæðum dýra, og vernda brunnsvæði, vatnsföll og náttúru- og fornminjar fyrir raski. Hverfsverndarsvæði skarast við önnur verndarsvæði, svo sem svæði á náttúruminjaskrá, friðlýst svæði og vatnsverndarsvæði, sem eru fjölmörg í landi borgarinnar. (Græna borgin – bls. 93)
Álftanes-Skerjafjörður
Suðurströndin telst til stærra svæðis sem er á náttúruminjaskrá. Svæðið er sérstaklega mikilvægt fyrir fugla. Hluti þess hefur verið friðaður og tilheyra friðlýstu svæðin Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Af hverju ætli Reykvíkingar séu ekki þarna með?





