Leira, sandur, grjót og þang – (SH).

Fjaran í Fossvogi er fremur fjölbreytt. Þar er leira, sandfjara og grýttar fjörur með þangi. Leiran verður áberandi á stórstraumsfjöru. Lífríkið er fjölskrúðugt og margir fuglar sækja þangað í leit að æti. Alls konar smádýr lifa inni á milli í þanginu, í fjörupollum og ofan í leirnum.

Umfjöllun um ólíkar fjörur og lífríki þeirra.

Margt er hægt að rannsaka í fjörunni. Þið ættuð endilega að leita að sandmöðkum í leirunni.

Áætlað er að koma upp nýju hverfi í Skerjafirði og gera landfyllingu í fjörunni eins og sést hér á myndinni fyrir neðan:

Heimkynni sandmaðks - (JBH).
Landfylling - (Reykjavíkurborg og EFLA)

Þessi vík er stundum kölluð Shell-ströndin, því þar var áður bryggja og bensín- og olíutankar á vegum Olíufélagsins Skeljungs.

Nauthólsvík - (WmC).

Áður fyrr náðu skólpræsi fremur stutt út í sjó og mikil mengun var víða í fjörum, til dæmis í Fossvogi. Eftir að skolpmálum var komið í betra horf var ákveðið að koma upp aðstöðu til sjóbaða í Nauthólsvík. Lónið og pottarnir eru hitaðir upp með umframvatni frá tönkunum í Öskjuhlíð.

Í Nauthólsvík er hægt að busla í hituðum sjó, leika sér í aðfluttum skeljasandi og sóla sig á góðum degi. Siglingaklúbbar hafa aðsetur í Nauthólsvík.

Þið getið kynnt ykkur aðstöðuna á vef Nauthólsvíkur.

Í bígerð er að smíða brú sem nær frá enda flugbrautar og yfir í Kársnes í Kópavogi.

😮 !!

Brúin yfir Fossvog gæti litið svona út skv. vinningstillögu - (EFLA og BEAM Architects).
  • Hvernig hefur maðurinn breytt umhverfinu í Nauthólsvík? Hvað finnst ykkur um breytingarnar? Reynið að finna bæði kosti og galla.
  • Kynnið ykkur hvað verður um skólp frá Reykjavík.
  • Hvaða áhrif ætli fyrirhugaðar framkvæmdir á svæðinu, það er landfylling og brú, hafi á náttúruna? Hver er tilgangur framkvæmdanna? Kynnið ykkur málið og ræðið.

Hvalbök og klappir

Lyngberg - (SH).

Í Fossvogi, nálægt Nauthólsvík, er mjög myndarlegt hvalbak, með þeim flottari í Reykjavík. Það er kallað Lyngberg. Það er vel pússað og þar má einnig sjá jökulrákir. Í grenndinni má víða sjá jökulsorfnar klappir. Um er að ræða merki ísaldarjökulsins – sjá nánar.

Heyrst hafa sögur um bláklædda huldukonu sem býr í Lyngbergi og ræður þar ríkjum.

Það er skemmtilegt að leika sér á þessum fallega kletti.

  • Skoðið vel Lyngberg og nálægar klappir. Sjáið þið jökulrákir og getið þið sagt til um í hvaða átt jökullinn skreið? Sjáið þið dæmigerð hvalbök?
    • Ímyndið ykkur Lyngberg sem bústað huldufólks. Hvar ætli sé gengið inn?!

KENNARAR / FULLORÐNIR

Lyngberg

Ágætt að fara á síðu sem almennt fjallar um ísaldarjökulinn og merki hans. Þar eru nokkur verkefni sem má vinna í samhengi við heimsókn í Fossvog.

Skólpið

Skólp rennur að dælustöðvum sem dæla því í skólphreinsistöðvar. Í skólphreinsistöðvum er skólpið hreinsað þar til það telst hæft til losunar í umhverfið. Skólpinu er dælt lengra út í sjó en áður fyrr. Skólp og illa hreinsað skólp er slæmt fyrir lífríki hafsins. Hægt er að fræðast um fráveitumál á vef Veitna.

Bók um sögu fráveitu: Cloacina eftir Guðjón Friðriksson. Þarna má m.a. sjá margar áhugaverðar myndir.