Hækkar og lækkar – stækkar og minnkar

Í Rauðavatn renna ekki lækir á yfirborði og heldur ekki frá því. Rauðavatn er grunnt en vatnsyfirborðið sveiflast mjög og fylgir stöðu grunnvatnsins á svæðinu. Þegar lækkar í vatninu þorna líka svæði við bakkana og sést í meira grjót.

Rauðavatn er aldrei eins.

Rauður gróður

Mikill gróður vex í vatninu og er botninn nánast algjörlega þakinn síkjamara. Þessi mikli gróður veitir alls konar lífverum skjól, en kemur líka í veg fyrir að leirinn á botninum rótist upp og gruggi vatnið. Gróðurinn eykur magn súrefnis í vatninu og kemur í veg fyrir að það verði fúlt.

Bæði stönglar og blóm síkjamara eru rauðleit. Blómin springa út ofan vatnsborðs. Vatnið fær því rautt yfirbragð á sumrin og ekki skrýtið að það sé nefnt RAUÐAvatn.

Síkjamari - (JBH).

Smádýr

Vatnaflær, árfætlur, rykmýslirfur og sundánar eru algengustu smádýrin í Rauðavatni. (Af þeim eru margar tegundir.) Tegundir sem almennt halda sig við vatnsbotn eru algengari í vatninu – enda er Rauðavatn grunnt. Lítið sem ekkert er af vatnabobba, sem víða er algengur. Líklega tengist það því að stór svæði Rauðavatns þorna upp þegar vatnsborð lækkar.

Lesa nánar um smádýralíf í fersku vatni og hvernig megi rannsaka það.

Klappir

Vestan við Rauðavatn eru klappir með mjög skýrum jökulrákum. Sjá umfjöllun um ísaldarjökla.

Klappir við Rauðavatn - (SH).
Við Rauðavatn - (SH).

Hornsíli

Mikið er um hornsíli í Rauðavatni en aðrir fiskar sjást þar ekki. Hornsíli er gaman að veiða og rannsaka – sjá nánar. Hornsílin í Rauðavatni eru fjölbreytt að stærð.

Sýkt síli

Nokkuð er um að hornsíli í Rauðavatni séu sýkt af bandormi. Lirfa ormsins lifir í kviðarholi hornsíla. Að hafa slíka lirfu, eða jafnvel margar lirfur, inni í sér hefur slæm áhrif á hornsílin. Þau verða útþanin, þung á sér og auðveld bráð. Hornsíli er millihýsill bandormsins.

Fuglar éta hornsíli og við Rauðavatn eru það einkum sílamáfur, toppönd og kannski flórgoði. Éti fugl síli með lirfu er hann þar með orðinn lokahýsill bandormsins. Í fuglinum verður bandormurinn kynþroska og egg hans komast út í umhverfið með driti (skít) fuglsins. Smádýr éta eggin og má þar einkum nefna árfætlur. Þær verða þá fyrri millihýsill. Árfætlur eru síðan stór hluti fæðu hornsíla.

Flórgoði

Flórgoði á Rauðavatni. Hvernig ætli staðan sé núna?

Eigendur hunda ættu að passa hundana á vorin og fram á sumar. Buslandi hundar og flórgoðar fara ekki vel saman.

Skógur

Skógræktarfélag Reykjavíkur var stofnað 1901 og austan við Rauðavatn er skógræktarsvæði sem félagið kom upp. Reyndar er um að ræða elsta skógræktarsvæðið á landinu. Þar var plantað innfluttum dönskum trjáplöntum og gekk það misvel. Mun betur fór að ganga þegar plantað var trjám sem höfðu vaxið upp af fræi hérlendis, fjallafura var þar fremst í flokki.

Um skóginn liggja stígar og þar er gott að ganga um og leika sér. Einu sinni var skógræktarstöð þarna og var trjánum sem þar uxu upp meðal annars plantað í Heiðmörk.

Tré ársins árið 2021 var heggur í Rauðavatnsstöðinni.

Fjallafura, fremur lágvaxin með langar nálar - (SH).
Heggurinn í vetrarham - (SH).
Úr Rauðavatnsskógi. Gamall hlaðinn garður er á myndinni og auðvitað trén sem eru orðin hávaxin - (SH).

Við Rauðavatn eru nokkur listaverk sem gaman er að skoða.

  1. Takið eftir breytingum á Rauðavatni og gerið mælingar á því. Hvert nær vatnið þegar mikið / lítið er í vatninu?
  2. Prófið að teikna skýringarmynd um ævi bandorms. Hvernig verður hornsíli hýsill bandormsins?
  3. Takið sýni af sýkjamara og lesið um hann í plöntuhandbók eða á floraislands.is
    • Grandskoðið plöntuhlutana (blóm, stöngul, lauf og rætur).
    • Lýsið muninum á plöntunni þegar hún er ofan í vatni og ekki í vatni.
    • Hvernig hefur síkjamari aðlagast lífi í vatni?
  4. Kannið smádýralífið.
  5. Hvaða fugla sjáið þið við vatnið. Hvað eru þeir að gera?

KENNARAR / FULLORÐNIR

Lífríki vatnsins

(Skýrsla um rannsóknir í Rauðavatni) – horfið af vefnum.

Umræða um síkjamara á Vísindavef: Hvað er þetta rauða sem er á Rauðavatni í Reykjavík?

Bandormur í hornsílum er af tegund með latneska heitið: Scistocephalus solidus.

Lengd hornsílanna í Rauðavatni er 2-5 cm.

Fuglar

Ýmsir fuglar sjást við Rauðavatn. Toppönd, sílamáfur og flórgoði eru nefndir í textanum í tengslum við hornsíli. Til viðbótar má nefna grágæs, kríu og skúfönd, en sú síðast nefnda er oft áberandi við vatnið.

Skógrækt

Austan við Rauðavatn er skógræktarsvæði. Skógræktarfélag Reykjavíkur hóf starf sitt einmitt á þessum stað árið 1901. Þar var plantað trjám og komið upp skógræktarstöð, Rauðavatnsstöðinni.

Á svæðinu eru ágætir göngustígar og staðir til að borða nesti og fara í leiki.

Hverfisvernd

Rauðavatn og næsta umhverfi er undir hverfisvernd.

Hæðirnar við Rauðavatn

Mælt er með að ganga um hæðirnar ofan við Rauðavatn. Þar er gott útsýni. Eins má sjá þar fallegar klappir og grjót með sínum fallegu fléttum. Grjótið er jökulsorfið og þar má líka sjá grjóthnullunga á stangli – þ.e. grettistök. Þarna eru ágætir stígar.

Listaverk

Þó nokkur listaverk eru í kringum Rauðavatn. Þau tengjast umhverfinu á skemmtilegan hátt:

Hér á myndinni er verkið Sumarhús eftir Borghildi Óskarsdóttur. Verkið á að minna á sel (haga og hús fjarri sveitabæ þar sem búfé var haldið á sumrin) og svo skemmtilega vill til að rétt neðan við listaverkið eru rústir gamals sels. Ljóst er að umhverfið hefur breyst mikið með öllum trjánum síðan þarna var sel. (Sumarhús er í gildragi í hlíðunum norðaustan vatnsins – þar er göngustígur.)

Baugur eftir Guðlaug Valgarðsson myndar skemmtilega umgjörð sem hentar vel fyrir hópa, t.d. skólahópa að setjast niður í og spjalla saman eða borða nesti. „Héðan getur þú lagt upp í nýja gönguferð og hingað getur þú komið aftur: þú veist hvar hann er og þú þekkir hann. Því hann er hluti af þér. Og þú ert hluti af honum.“  (Baugur er sunnan við vatnið, til móts við þar sem skógurinn byrjar, en nær vatninu. Baugur sker sig úr fyrir formið og gróðurinn.)

Tíminn heygður eftir Vigni Jóhannsson minnir á gamla dys. Í gamla daga var hefð fyrir að kasta steini í dys, svo sá er undir lægi hvíldi í friði. Í verkinu eru milljón sæslípaðra steina af misjafnri stærð. Hugmyndin er að þeir sem framhjá ganga kasti steini í miðjuna og þar myndist smám saman haugur. (Verkið er við gangstiginn sunnan við vatnið.)

Listaverkið Sumarhús eftir Borghildi Óskarsdóttur - (SH).