Áður fyrr var búskapur í eyjunum við Reykjavík og bæði Akurey og Engey bera nöfn sem staðfesta það. Lundey, Þerney og Viðey segja sömuleiðis sitt um lífríkið. Þerna = kría.
Akurey
Akurey var friðuð sem friðland árið 2019. Þar er alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð. Með friðlýsingunni er verið að vernda fuglana einkum búsvæði lunda, teistu og æðarfugls. Lundi er langalgengasti fuglinn í eynni, um 20.000 varppör. Enda þótt lundi sé algengur í Akurey er hann því miður kominn á válista og er almennt álitinn í „bráðri hættu“. Honum hefur fækkað mjög mikið einkum á sunnanverðu landinu, til dæmis í Vestmannaeyjum. Teista er metin sem tegund „í hættu“ og æðarfuglinn í „nokkurri hættu“. Í Akurey eru fleiri tegundir fugla svo sem fýll, kría og sílamáfur og á veturna sækir þangað fjöldi skarfa.
Lundey
Lundey var friðuð sem friðland árið 2021. Lífríkið í Lundey er mjög fjölskrúðugt. Þar er fjölbreyttur gróður og mikið fuglalíf.
Líkt og í Akurey er í Lundey mikil byggð sjófugla, einkum lunda. Algengustu fuglar eyjarinnar eru á válista; lundi, rita, æðarfugl og teista. Gróðurinn í Lundey þykir sérstakur en þar vex gulstör í bland við haugarfa.
Fuglar Íslands, fuglar heimsins
Stofnar sjófugla hérlendis eru mjög stórir í alþjóðlegu samhengi. Meirihluti lunda í heiminum, verpur til dæmis hér á landi. Íslendingar bera því mikla ábyrgð og þurfa að gæta búsvæða þessara fugla til að þeir geti lifað áfram og dafnað hér á Jörðinni.
Engey, Þerney og Viðey
Engey og Þerney eru á náttúruminjaskrá. Um þær er sagt: „Lágar, grónar eyjar í næsta nágrenni við þéttbýli. Varpstöðvar allmargra fuglategunda.“
Viðey er sömuleiðis á náttúruminjaskrá. Um hana segir: „Lítt snortin og vel gróin eyja með fjölbreyttu landslagi í nánd við þéttbýli. Söguminjar. Vinsælt útivistarsvæði.“
Meira um lunda
Þótt lundi sjáist í Viðey og Engey er þar lítið varp. Lundinn var ofveiddur í Viðey áður fyrr og í seinni heimstyrjöldinni hvarf lundinn nánast úr Engey. Í Engey voru nefnilega sett upp hernaðarmannvirki og fallbyssur. Kannski veiddu hermennirnir lunda eða hræddu hann… hver veit?
- Skoðið eyjarnar á Sundunum á korti og með berum augum og leggið á minnið heiti þeirra. Hvað er einkennandi fyrir hverja eyju?
- Raðið eyjunum í stærðarröð.
- Með friðun eyjanna er einnig talað um að verið sé að vernda líffræðilega fjölbreytni. Hvað er átt við með því? (Sjá hér.)
- Þegar land er gert að friðlandi eru gjarnan settar reglur um umgengni. Kynnið ykkur málið á vef Umhverfisstofnunar.
- Ef skoðuð eru kort af friðlandi eyjanna sést að mörk friðlandsins ná þó nokkuð út í sjó. Hver ætli ástæðan sé fyrir því?
- Ef Akurey og Lundey væru ekki friðlönd væri þá hætta á að fuglarnir yrðu fyrir truflun? Hvers konar truflun væri það?
- Hvað ætli margar höfuðborgir eigi eyju með verðmætu fuglalífi?
- Kynnið ykkur fuglana sem lifa í Akurey og Lundey á Fuglavefnum.
Hugmyndir hafa lengi verið uppi um að leggja Sundabraut. Það myndi stytta leiðina frá Reykjavík á Vestur- og Norðurland verulega – og auðvitað hina leiðina líka.
Það mun kosta mikla peninga að gera þennan veg. Líklega þarf að grafa göng, útbúa landfyllingar og smíða brýr. Mikil áhrif eru af veginum á náttúruna og umhverfið í kring.
Á myndinni virkar vegurinn sums staðar mjög breiður, en um er að ræða áhrifasvæði vegarins.
Getið þið séð kosti við Sundabraut? Getið þið séð galla við Sundabraut? Ræðið og skráið.
KENNARAR / FULLORÐNIR
Gáta vísindamanna
Í Akurey hefur lundastofninn braggast mikið frá því um árið 2000. Í Lundey, sem er í næsta nágrenni, hefur hins vegar orðið fækkun á þessum tíma. Þetta eiga vísindamenn erfitt með að útskýra. Framboð af fæðu er það sama. Horft er til túristabáta. Þeir komast nær Lundey, en á móti kemur að þeir eru færri sem sigla að henni.
Örfirisey og Geldinganes – eyjur eða ekki eyjur!
Örfirisey getur ekki talist eyja því hún er áföst landi með landfyllingu. Þar er landið frekar ferkantað! Sjá verkefni á síðunni Við sjóinn.
Geldinganes er tengt landi með eiði. Mætti kannski líta á Geldinganes sem eina eyjuna í viðbót?
Kostir og gallar við Sundabraut
Kostir: styttir vegalengd -> minni tími í ferðir, minni notkun á eldsneyti, minni mengun
Gallar: á Sundunum er víða falleg náttúra og jafnvel friðlýst eða vernduð. Þar eru alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði. Hætta er á að vegur myndi skaða þessa náttúru. Ásýnd Borgarinnar við Sundin gæti laskast.



