Björnslundur
Lífríki: Skógur, gróður, fuglar, smádýr
Landslag: Skipulagt skógarsvæði.
Athyglisvert: Grenndarskógur Norðlingaskóla og leikskólans Rauðhóls. Í lundinum er nýlegt skógarhús fyrir leikskólabörnin. Þar er allur búnaður sem þarf fyrir útikennslu og daglegt starf í leikskólanum. Úti er útileikhús, sleðabrekka, eldstæði og fleira. Í Björnslundi má ýmislegt bralla og líka drullumalla! Skógurinn er síðan um 1940 en Björn Ófeigsson kaupmaður átti þarna hús og ræktaði í kringum það.
Bugða
Lífríki: Votlendisgróður, smádýr og fuglar.
Landslag: Votlendi og á.
Athyglisvert: Öðru hverju verða flóð í ánni og landið umhverfis fer á kaf. Það gerir gróðrinum á svæðinu mjög gott – enda mikil næringarefni í vatninu. Meðfram Bugðu er því fjölbreyttur gróður og fuglalíf mikið.
Hólmsá greinist í Suðurá og Bugðu.