Í Skildinganeshólum er fallegt grjót og klappir. Þetta er Reykjavíkurgrágrýti sem er pússað af jökli. (Sjá umfjöllun um jökulminjar.) Það er gaman að virða fyrir sér lögunina á grjótinu, hoppa á milli og kannski læra að þekkja steinana í sundur. Engir tveir eru eins. Í grjótinu getur verið gaman að leika sér.
Grjót skapar ákveðnar aðstæður fyrir lífverurnar. Í kringum grjótið helst raki, undir því er myrkur og í sólinni myndast í því hiti. Mikið er um smádýr við grjótið, plöntur vaxa við það og fléttur á því. Það er margt að skoða.
Grjót
- Þið ættuð að reyna að sjá jökulrákir í grjótinu. Veltið þeim vel fyrir ykkur. Farið með krít ofan í þær sem eru afgerandi. Í hvaða átt liggja þær? Í þá sömu átt rann jökullinn á sínum tíma.
- Sjáið þið hvalbök, eða allavega grjót með hlið sem er stöllótt og hrjúf?
- Á einu grjótinu er forn áletrun. Getið þið fundið það?
Líf
Gróðurinn
- Sumar tegundir plantna sækja í aðstæðurnar nálægt grjótinu. Í Skildinganeshólum er fjölbreyttur villtur gróður en líka garðagróður úr nágrenninu. Takið eftir hvernig gróðurinn vex næst steinunum. Hvaða plöntur sjáið þið?
Fléttur
- Rannsakið líka flétturnar.
Smádýr
- Þið finnið örugglega smádýr nálægt grjótinu. Raki við steina gerir sumum tegundum fært að lifa á svæðinu til dæmis sumum sniglum. Sjá nánar umfjöllun um smádýr.
KENNARAR / FULLORÐNIR
Landamerkjasteinn
Sagt er fá landamerkjasteininum sem er efst í Skildinganeshólum á Sarpi. Þrír slíkir steinar sýna mörk jarðarinnar Skildinganess. Hinir eru í Öskjuhlíð og við Lambhól við Ægisíðu. Lesa á Sarpi.
Þistill
Þistill barst til Íslands með mönnum fyrir hundruðum ára. Í gamla daga var hann notaður til lækninga. Þistill vex hér og hvar í og við byggð. Í Reykjavík er hann gjarnan á stöðum eða lóðum þar sem ekki eru ræktaðir garðar og enginn virðist beinlínis sjá um.


