Hólavallagarður er kirkjugarður. Elsta leiðið er frá því árið 1838. Hvað eru mörg ár síðan?
Leiðin í garðinum liggja mjög þétt, einkum í elsta hlutanum. Það er svolítið ævintýralegt að ganga þar um. Margar tegundir trjáa vaxa þar og eru orðin stór. Sums staðar er næstum því dimmt. Mosi og skófir eru áberandi á veggjum, legsteinum og líka trjánum.
Það er hægt að gleyma sér í kirkjugarðinum við að rannsaka lífríkið og einnig velta fyrir sér fólkinu sem þar er grafið. Stundum kemur fram hvað það starfaði. Hjón eða fjölskyldur eru gjarnan saman í grafreit. Svo má líka skoða krossa og legsteinana sem listaverk.
Náttúrurannsóknir
Það sem mætti rannsaka í Hólavallagarði:
- smádýr, ánamaðka og snigla
- fléttur
- fugla
- gróður (mosa, tré og minni plöntur – meðal annars sumarblóm)
Hólavallagarður var friðlýstur 19. júní 2025 – lesa frétt.
KENNARAR / FULLORÐNIR
Kirkjugarður Reykvíkinga
Hólavallagarður tók við af Víkurgarði sem aðalkirkjugarður Reykvíkinga. Þegar þrengja fór um þar tók Fossvogskirkjugarður við (1932) og nú er Gufuneskirkjugarður aðalkirkjugarðurinn.
Grenndarskógur?
Ekki eru eiginlegir skógar í Vesturbænum. Trén í Hólavallagarði eru fjölbreytt og mörg mjög gömul. Hólavallagarður er mikið nýttur af skólunum í Vesturbænum. Melaskóli og Vesturbæjarskóli hafa meira að segja gert um það ákveðinn samning við Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæmis að í Hólavallagarði sé þeirra grenndarskógur.
Verkefni í kirkjugarði
Í kirkjugarðinum mætti skoða ýmsar garðaplöntur. Þær eru oft stórgerðar og plöntulíffæri greinileg, s.s. fræ, fræflar, frævur, krónublöð, bikarblöð, lauf o.s.frv. Þannig mætti til dæmis gera úttekt á lögun laufblaða og finna hvað lögunin kallast (sjá inngang í plöntuhandbókum).
Í kirkjugarði er annars auðvelt að setja upp fjölbreytt verkefni. Velta má fyrir sér hvort betur er hirt um nýlegar grafir en þær sem eldri eru, reikna út aldur hinna látnu, skoða hvort litur blóma tengist kyni þess er liggur í gröfinni, velta fyrir sér fjölskyldum, stöðu og jafnvel atvinnu.
Krakkarnir gætu sjálfir fundið upp á verkefnum þar sem viðfangsefnið er kirkjugarðurinn.
Garðurinn eftir Gerði Kristnýju
Sögusvið bókarinnar er Hólavallagarður. Spennandi og skemmtileg saga. Ef til vill gætu lesendur gefið náttúrunni sérstakan gaum við lesturinn.
