Áður fyrr var búskapur í eyjunum við Reykjavík og bæði Akurey og Engey bera nöfn sem staðfesta það. Lundey, Þerney og Viðey segja sömuleiðis sitt um lífríkið. Þerna = kría.

Akurey

Akurey var friðuð sem friðland árið 2019. Þar er alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð. Með friðlýsingunni er verið að vernda fuglana einkum búsvæði lunda, teistu og æðarfugls. Lundi er langalgengasti fuglinn í eynni, um 20.000 varppör. Enda þótt lundi sé algengur í Akurey er hann því miður kominn á válista og er almennt álitinn í „bráðri hættu“. Honum hefur fækkað mjög mikið einkum á sunnanverðu landinu, til dæmis í Vestmannaeyjum. Teista er metin sem tegund „í hættu“ og æðarfuglinn í „nokkurri hættu“. Í Akurey eru fleiri tegundir fugla svo sem fýll, kría og sílamáfur og á veturna sækir þangað fjöldi skarfa.

Friðlýsing eyjanna felst aðallega í því að takmarka umferð og þannig koma í veg fyrir truflun og vernda lífbreytileika. Upplýsingar um Akurey  og Lundey á vef Náttúruverndarstofnunar.

Ég hef aldrei séð lunda.

Lundey

Lundey var friðuð sem friðland árið 2021. Lífríkið í Lundey er mjög fjölskrúðugt. Þar er fjölbreyttur gróður og mikið fuglalíf.

Líkt og í Akurey er í Lundey mikil byggð sjófugla, einkum lunda. Algengustu fuglar eyjarinnar eru á válista; lundi, rita, æðarfugl og teista. Gróðurinn í Lundey þykir sérstakur en þar vex gulstör í bland við haugarfa.

Lundi - (JÓH).

Fuglar Íslands, fuglar heimsins

Stofnar sjófugla hérlendis eru mjög stórir í alþjóðlegu samhengi. Meirihluti lunda í heiminum, verpur til dæmis hér á landi. Íslendingar bera því mikla ábyrgð og þurfa að gæta búsvæða þessara fugla til að þeir geti lifað áfram og dafnað hér á Jörðinni.

Firðir, eyjar og vogar (unnið úr map.is - SH)

Engey, Þerney og Viðey

Engey og Þerney eru á náttúruminjaskrá. Um þær er sagt: „Lágar, grónar eyjar í næsta nágrenni við þéttbýli. Varpstöðvar allmargra fuglategunda.“

Viðey er sömuleiðis á náttúruminjaskrá. Um hana segir: „Lítt snortin og vel gróin eyja með fjölbreyttu landslagi í nánd við þéttbýli. Söguminjar. Vinsælt útivistarsvæði.“

Meira um lunda
Þótt lundi sjáist í Viðey og Engey er þar lítið varp. Lundinn var ofveiddur í Viðey áður fyrr og í seinni heimstyrjöldinni hvarf lundinn nánast úr Engey. Í Engey voru nefnilega sett upp hernaðarmannvirki og fallbyssur. Kannski veiddu hermennirnir lunda eða hræddu hann… hver veit?

  • Skoðið eyjarnar á Sundunum á korti og með berum augum og leggið á minnið heiti þeirra. Hvað er einkennandi fyrir hverja eyju?
  • Raðið eyjunum í stærðarröð.
  • Með friðun eyjanna er einnig talað um að verið sé að vernda líffræðilega fjölbreytni. Hvað er átt við með því? (Sjá hér.)
  • Þegar land er gert að friðlandi eru gjarnan settar reglur um umgengni. Kynnið ykkur málið á vef Umhverfisstofnunar.
  • Ef skoðuð eru kort af friðlandi eyjanna sést að mörk friðlandsins ná þó nokkuð út í sjó. Hver ætli ástæðan sé fyrir því?
  • Ef Akurey og Lundey væru ekki friðlönd væri þá hætta á að fuglarnir yrðu fyrir truflun? Hvers konar truflun væri það?
  • Hvað ætli margar höfuðborgir eigi eyju með verðmætu fuglalífi?
  • Kynnið ykkur fuglana sem lifa í Akurey og Lundey á Fuglavefnum.

Sundabraut

Fyrirhuguð Sundabraut - (Vegagerðin).

Hugmyndir hafa lengi verið uppi um að leggja Sundabraut. Það myndi stytta leiðina frá Reykjavík á Vestur- og Norðurland verulega – og auðvitað hina leiðina líka.

Það mun kosta mikla peninga að gera þennan veg. Líklega þarf að grafa göng, útbúa landfyllingar og smíða brýr. Mikil áhrif eru af veginum á náttúruna og umhverfið í kring.

Á myndinni virkar vegurinn sums staðar mjög breiður, en um er að ræða áhrifasvæði vegarins.

Getið þið séð kosti við Sundabraut? Getið þið séð galla við Sundabraut? Ræðið og skráið.

Sundin blá - (SH).

KENNARAR / FULLORÐNIR

Gáta vísindamanna

Í Akurey hefur lundastofninn braggast mikið frá því um árið 2000. Í Lundey, sem er í næsta nágrenni, hefur hins vegar orðið fækkun á þessum tíma. Þetta eiga vísindamenn erfitt með að útskýra. Framboð af fæðu er það sama. Horft er til túristabáta. Þeir komast nær Lundey, en á móti kemur að þeir eru færri sem sigla að henni.

Örfirisey og Geldinganes – eyjur eða ekki eyjur!

Örfirisey getur ekki talist eyja því hún er áföst landi með landfyllingu. Þar er landið frekar ferkantað! Sjá verkefni á síðunni Við sjóinn.

Geldinganes er tengt landi með eiði. Mætti kannski líta á Geldinganes sem eina eyjuna í viðbót?

Kostir og gallar við Sundabraut

Kostir: styttir vegalengd -> minni tími í ferðir, minni notkun á eldsneyti, minni mengun

Gallar: á Sundunum er víða falleg náttúra og jafnvel friðlýst eða vernduð. Þar eru alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði. Hætta er á að vegur myndi skaða þessa náttúru. Ásýnd Borgarinnar við Sundin gæti laskast.