Hrefna Sigurjónsdóttir (f. 1950) lauk BS-próf í líffræði frá Háskóla Íslands 1973, viðbótarnámi í líffræði 1974, MS-próf í vistfræði 1976 frá University of Wales í Bangor, PhD-próf í atferlisvistfræði 1980 frá University of Liverpool, Englandi og kennsluréttindum 1982 frá Háskóla Íslands.
Hún starfaði sem háskólakennari frá 1981, þar af prófessor frá 1998-2020, við Kennaraháskóla Íslands (síðar menntavísindasvið HÍ). Hún kenndi kennaranemum og starfandi kennurum ýmsar greinar líffræði og kennslufræði hennar auk umhverfismenntar, og líffræðinemum dýraatferlisfræði. Hún hefur einnig unnið að námsefnisgerð og rannsakað hegðun ýmissa dýra, síðast íslenska hestsins. Nánari upplýsingar