Helga Snæbjörndóttir (f. 1974) lauk B.Ed próf frá Kennaraháskóla Íslands árið 2004. Hún lauk M.Ed prófi haustið 2018 í kennslu náttúrugreina.
Lokaverkefni hennar fjallaði um innleiðingu leiðsagnarnáms og heitir „Frábær mistök!“. Hún hefur kennt náttúrufræði og stærðfræði við Hlíðaskóla síðan 2004 og jafnframt þjálfað kennaranema á vettvangi. Helga prufukenndi námsbókina Efnisheiminn eftir Hafþór Guðjónsson, samdi ítarefni, spurningar og próf fyrir námsefnið Litróf náttúrunnar og samdi kennsluleiðbeiningar fyrir kennslubækurnar Eðlisfræði 1-3.