Landakotstún 

Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr

Landslag: Garður – borgarskipulag – leiktæki

Athyglisvert: Kaþólski söfnuðurinn eignaðist jörðina Landakot árið 1860. Söfnuðurinn byggði og rak spítala, kirkju (sem var breytt í íþróttahús), skóla og hina núverandi kirkju, sem var vígð 1929. – Árið 1989 var lokið frágangi lóðarinnar. Það tók tíma!

Mér finnst eins og Hallgrímskirkja sé biskup og Landakotskirkja sé hrókur!

Garður við Þjóðarbókhlöðu 

Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr

Landslag: Garður

Athyglisvert: Hlaðnir veggirnir minna á torfbæi og gamla daga. Í bókhlöðunni eru margar gamlar bækur og gögn en líka það nýjasta sem er gefið út. Þjóðarbókhlaðan er mjög stórt hús en hlöðnu veggirnir blekkja augað þannig að það virkar minna. Sumum finnst garðurinn minna á íþróttavöll með hallandi grasflötum líkt og á áhorfendasvæði. Þarna var Melavöllurinn til ársins 1985.

Merki ísaldarjökuls

Jökulsorfnar klappir má meðal annars finna hér:

  • á lóð við Hagaskóla
  • á mótum Hjarðarhaga og Suðurgötu – norðanmegin
  • í fjöru neðan við Sörlaskjól
  • í Skildinganeshólum