Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Í garðinum er hægt að skemmta sér og fræðast um ótal margt. Í húsdýragarðinum má sjá húsdýrin í návígi og reyndar mörg önnur dýr líka. Oft eru viðburðir á dagskrá og þar er tekið á móti skólahópum. Best er að lesa um þetta allt á vef garðsins.
Garður við Ásmundarsafn
Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr
Landslag: Garður – borgarskipulag
Athyglisvert: Ævintýralegt umhverfi þar sem listaverk eftir Ásmund Sveinsson (1893 – 1982) njóta sín. Hann bjó og var með vinnustofu í húsinu. Nú er þar safn. Ásmundur vildi gjarnan að börn léku sér í garðinum.
Klappir við Laugarásbíó
Lífríki: Trjágróður og grasblettir, fuglar og smádýr
Landslag: Jökulsorfnar klappir.
Varúð: Mikil umferðargata í næsta nágrenni.
Athyglisvert: Fallegar jökulsorfnar klappir framan við Laugarásbíó. Mjög skýr merki um hvernig jökull hefur pússað yfirborð klappanna. Það er gaman að leika sér og hoppa á grjótinu og skoða vel.
Nafnlaus klettur nálægt Sundahöfn
Landslag: Klettur
Varúð: Farið varlega við klettinn. Það er hátt fall að detta ofan af honum!
Athyglisvert: Þarna sést hið forna berg Viðeyjareldstöðvarinnar (basalt og móberg). Um er að ræða elsta berg Reykjavíkur. Lesa meira.
borg = áberandi klettahæð í landslagi
Klettar við Klepp
Landslag: Klettar
Varúð: Farið varlega ef þið klifrið. Klettarnir eru við götu.
Athyglisvert: Þarna sést hið forna berg Viðeyjareldstöðvarinnar (basalt og móberg). Um er að ræða elsta berg Reykjavíkur. Lesa meira.