Merki mannsins

Menningarlandslag er landsvæði sem hefur mótast af framkvæmdum manna. Í Laugarnesi er merkilegt menningarlandslag. Þar sjást merki langrar sögu. Sumar minjarnar eru merktar.

Hallgerður langbrók (persóna í Njálu) bjó í Laugarnesi síðustu æviárin. Líklega er hún grafin í fyrsta kirkjugarðinum í Reykjavík sem einmitt var í Laugarnesi. Veggur garðsins er sýnilegur.

Laugarnes var kirkjustaður. Þar var þegar komin kirkja árið 1200 skv. gömlum heimildum, en líklega ennþá fyrr. – Hús var reist fyrir biskup Íslands í Laugarnesi árið 1824.

Í gegnum tíðina var búskapur í Laugarnesi og honum fylgdu útihús og fleira tengt ræktun og dýrahaldi. Bæjarhóllinn, þar sem bærinn stóð og eins kirkjan, er nálægt gatnamótum Sæbrautar og Héðinsgötu.

Danskir félagar í félagsskapnum Oddfellow létu byggja spítala í Laugarnesi fyrir holdsveika 1898. Þá var Laugarnes nokkuð fyrir utan mesta þéttbýlið. Margir óttuðust þennan hræðilega sjúkdóm.

Á stríðsárunum var stórt braggahverfi í Laugarnesi. Í stríðslok fékk Sigurjón Ólafsson einn braggann sem vinnuaðstöðu. Síðar varð til Listasafn Sigurjóns Ólafssonar.

Við fallega fjöru í Laugarnesi - (SH).

Þegar torfhúsum er ekki haldið við falla þau að lokum og tóftir verða til. Smám saman gróa þær. Þar sem eru fornbýli sjáum við einkum móta fyrir torfveggjum húsanna.

Bæjarhóll í Laugarnesi - (SH).

Laugarnes er friðlýst

Í janúar 2026 var Laugarnesið friðlýst. Þar er horft til merkra menningarminja og búsetulandslags, en um leið mun friðlýsingin ná til náttúrunnar. Ströndin við Laugarnes er ósnortin. Hún er því sérstaklega verðmæt. Í Laugarnesi eru meðal annars sjávarbarnir klettar og hnullungafjörur sem ekki eru víða í Reykjavík. Víðast hefur norðurströnd Reykjavíkur verið breytt með landfyllingum eða manngerðum grjótgörðum.

  1. Skoðið vel tóftir sem á vegi ykkar verða. Veltið fyrir ykkur hvers konar hús er um að ræða (útihús, íbúðarhús, smiðju…)
  2. Þar sem hefur verið búskapur er oft fjölbreytt graslendi. Finnið eins margar tegundir af „stráum“ og þið getið til þess að skoða og rannsaka.
  3. Fjaran í Laugarnesi er talin falleg. Hvað er fallegt við hana? – Margt er að skoða í fjörunni. 
  4. Rétt við Laugarnes var nýlega gerð landfylling. Kynnið ykkur málið og ræðið.
  5. Kynnið ykkur Sigurjón Ólafsson myndhöggvara. Ætli búseta hans í Laugarnesi hafi haft áhrif á list hans? Sigurjón á nokkur útilistaverk í Reykjavík. Kannist þið við einhver þeirra? 
  6. Margir braggar voru byggðir á Íslandi á stríðsárunum. Lýstu hvernig braggi lítur út. Ennþá má sjá bragga í Reykjavík. Hafið augun opin!

Rétt við Laugarnes er nýleg landfylling. Margir eru mjög óánægðir með það. Hún stingur í augun.

Landfylling ... og Viðey - (SH).

KENNARAR / FULLORÐNIR

Náttúruminjaskrá

„Vesturhorn Laugarness, Reykjavík. (1) Mörk svæðisins eru að sunnan frá Kleppsvegi á móts við Suðurkotsvör meðfram Kleppsvegi að Laugarnesvegi og þaðan meðfram húsum Tollvörugeymslunnar og Kletts í sjó. (2) Fjörur og strandbelti á vesturströnd Laugarness, sem að mestu er óröskuð strandlengja með sérkennilegum sjávarrofnum klettum. Vinsæll útivistar- og útsýnisstaður, ásamt menningarsögulegum minjum.“ (Af vef Umhverfisstofnunar)

Strá

Strá er orð yfir stöngul grasa og annarra graskenndra plantna. Graskenndar plöntur geta verið auk grasa: hærur, sef, elftingar og starir. Á stönglinum vaxa blóm og lauf.

Landfylling í Laugarnesi – umræða

Með einfaldri leit á vefnum má sjá sjónarmið varðandi landfyllingu í Laugarnesi. Megnið af efninu er komið úr grunni nýja Landspítalans.

Sagan

  • Laugarnes var kirkjustaður allt til ársins 1794 þegar kirkjan var rifin og sameinuð Dómkirkjunni í Reykjavík.
  • Skálholtsbiskupsdæmi og Hólabiskupsdæmi voru sameinuð í eitt og biskupsstóllinn fluttur til Reykjavíkur árið 1801. Sá sem fékk byggt yfir sig hús í Laugarnesi var Steingrímur Jónsson og er hann annar biskup Íslands.
  • Njála á að hafa gerst á síðustu áratugum 10. aldar.