Hluti Laugaráss er friðaður. Svæðið er sérstakt með allt þetta jökulsorfna grjót. Þar er líka áhugaverður holtagróður. Staðsetningin í þéttbýli gefur mörgum tækifæri til að njóta þess. Í því felst líka hætta fyrir svæðið, því í borgum og bæjum eru oft meiri framkvæmdir og mannvirkjagerð en í dreifbýli.
Grjótið og jarðfræðin
Jöklar ísaldar skriðu á klöppunum í Laugarási og fluttu til hnullunga. Nóg er þar af grjótinu. Víða má sjá merki jökulsins, til dæmis jökulrákir.
Við lok jökulskeiðsins, þegar jöklarnir voru að hverfa en landið enn lágt eftir ísfargið náði sjórinn langt upp á land. Mestur hluti Reykjavíkur var undir sjó. Þó kíktu nokkrir staðir upp úr, meðal annars Laugarás sem var eins konar sker.
Sjórinn lamdi á grjótinu og skolaði burtu sandi og smásteinum. Stóru og þungu hnullungarnir sátu eftir. Smátt og smátt fór landið að rísa og nú er Laugarás 45 metrum yfir sjávarmáli.
Lábarið grjót er grjót sem brimið hefur skollið á og pússað.
Ás er hæð sem gjarnan er löng og lá.
- Pælið í grjótinu í Laugarásnum og reynið að sjá það fyrir ykkur undir jökli og eins umflotið sjó.
- Sjáið þið að grjótið sé máð af jökli eða lábarið? Sjáið þið jökulrákir?
- Veljið ykkur einn hnullung og gaumgæfið hann mjög vel.
- Hvernig gróður er í kringum hann? Er steinninn vel sýnilegur eða á kafi í gróðri?
- Vaxa fléttur eða mosi á steininum?
- Hvað einkennir steininn? Gætuð þið fundið hann aftur?
- Sjáið þið einhverjar pöddur á eða við steininn?
Gróðurinn
Með friðun Laugaráss var líka horft til gróðursins. Þar var ríkjandi upprunalegur og fjölbreyttur holtagróður. Hann er ekki svo algengur í þéttbýli Reykjavíkur og því ástæða til að vernda hann.
Því miður hefur sá gróður látið undan í samkeppni við annan gróður í Laugarásnum, meðal annars ágengar tegundir. Núna sést holtagróðurinn á einstaka stað – helst á norður- og austurhluta svæðisins.
Í kringum friðlýsta svæðið eru húsagarðar. Gróður hefur sáð sér út frá þeim. Meðal annars er talsverður trjágróður og eru hávöxnustu trén næst görðunum.
Hin ágenga lúpína myndar miklar breiður í Laugarási. Lúpína útrýmir holtagróðri. Reynt hefur verið að hemja lúpínuna með því að slá hana.
<< Gróður í Laugarási (holtagróður) – (SH).
- Finnið þið holtagróður? Greinið nokkrar tegundir.
- Skoðið trjágróðurinn í Laugarási.
- Hvaða tegund er mest áberandi?
- Hvernig lítur undirgróður trjánna út. Er munur á honum hjá lauftrjám og barrtrjám?
- Rannsakið lúpínu. Skoðið plöntuhlutana.
- Kannið annan gróður í lúpínubreiðunum. Finnið þið aðrar tegundir?
- Laugarás stendur hátt í borgarlandinu. Snúið ykkur hægt í heilan hring og horfið. Sjáið þið önnur hverfi borgarinnar, merkilegar byggingar, eyjarnar á Sundunum, fjöll og áhugaverða staði?
- Sjáið þið fugla? Hvaða fuglar skyldu sækja í svona umhverfi?
- Er hægt að gera eitthvað fyrir friðlýsta svæðið í Laugarási til að það haldi sem best sínu gildi?
KENNARAR / FULLORÐNIR
Svæðið var friðlýst sem náttúruvætti árið 1982. Sjá vef Náttúruverndarstofnunar.
Í Laugarási er stórgrýti og er um að ræða Reykjavíkurgrágrýtið ~ 200.000 ára gamalt berg.
Til að viðhalda náttúrulegum holtagróðri er gott að:
- dreifa ekki garðaúrgangi á svæðið
- dreifa ekki áburði á svæðið
- hemja ágengar tegundir
SKÝRSLA: Úttekt á friðlýstum svæðum í Reykjavík: Laugarás – 2013










