Tröllafoss er í Leirvogsá sem rennur um Stardal. Áin er á mörkum Mosfellsbæjar og Reykjavíkurborgar (Kjalarness).

Tröllafoss er reyndar í miðri fornri og kulnaðri megineldstöð, Stardalseldstöðinni. Talið er að eldstöðin hafi verið virk fyrir um 1,8 milljónum ára. Á svæðinu má mjög víða sjá sérkennilega kletta og berg.

Tröllafoss og næsta umhverfi hans er á náttúruminjaskrá. Þarna eru þessar merkilegu jarðminjar og tilkomumikill foss í næsta nágrenni við þéttbýli höfuðborgarsvæðisins. Náttúrufegurðin er mikil.

Ef þið farið að Tröllafossi ættuð þið að virða vel fyrir ykkur landslagið. Í næsta nágrenni eru til dæmis sérkennilegir og miklir stuðlabergsklettar sem kallast Þríhnúkar. Það er gaman að fara að þeim, en þá verður að hafa góðan tíma og gott nesti.

Hinir litfögru Móskarðshnjúkar blasa við og auðvitað Esjan sjálf.

Víða er fallegur og villtur gróður á svæðinu, einkum í dældum en einnig melar með fremur litlum gróðri.

Tröllafoss - (SH).

Gangið vel um þetta fallega svæði.

En hvar ætli tröllið sé?

Gljúfrið framan við fossinn kallast Tröllagljúfur - (SH).

KENNARAR / FULLORÐNIR

Gönguleiðir

Ef komið er á bíl mæla landeigendur með að honum sé lagt við grænan rafmagnsskúr sem er á hæðinni áður en komið er að bænum Skeggjastöðum. Skúrinn sést vel frá veginum. (Ekki skal ekið eftir gömlum slóðum.)

Einnig má ganga hinum megin við ána frá Hrafnhólum, en sú leið er lengri. Sjónarhorn á fossinn er ekki síðri þar.