Klambratún

Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr

Landslag: Garður – hönnun

Varúð: Götur nálægt

Athyglisvert: Klambratún er á stað sem áður voru fjórir sveitabæjir. Einn þeirra hét Klömbrur. Stundum er talað um Miklatún, enda er túnið stórt og við mikla götu, Miklubraut.

Kjarvalsstaðir eru miðsvæðis í garðinum og er listasafnið teiknað þannig að garðurinn fái notið sín, auk þess sem auðvelt er að ganga út í hann.

Í garðinum eru leiktæki, sleðabrekka, boltavellir og fleira.

Styttur: Reykjavíkurvarðan, Minnismerki um Nínu Tryggvadóttur, Minnismerki um Þorstein Erlingsson, Hraun og Rek.

Veðurstofuhæð / Litla-Öskjuhlíð

Lífríki: Að hluta til villtur gróður, fuglar, smádýr

Landslag: Jökulsorfnar klappir

Varúð: Götur nálægt

Jökulsorfnar klappir - (GH).

Athyglisvert: Á hæðinni er ýmislegt að sjá. Þar eru meðal annars fallegar klappir með jökulrákum, sem leika aðalhlutverk í listaverki. Inni á milli klappanna og á hæðinni almennt, má sjá þó nokkuð af villtum gróðri – eins konar sýnishorn af gróðri sem þarna væri ríkjandi ef ekki væri borg / þéttbýli í Reykjavík.

Í kringum Veðurstofu Íslands má sjá fjölbreytt veðurathugunartæki.

Nú er verið að þétta byggðina á þessu svæði. Þarna munu rísa þó nokkur hús og leggja á áherslu á að þetta verði vistvæn hús sem styðja við grænan lífsstíl. Byggingarefnið verður timbur og ekki er reiknað með bílastæðakjöllurum eða mjög mörgum bílastæðum.

KENNARAR / FULLORÐNIR

Örnefni – hæðin hjá Öskjuhlíð

Þessi hæð hefur í gegnum tíðina verið þekkt undir ýmsum nöfnum, lengst af sem Litlahlíð, Litla-Öskjuhlíð eða Minni-Öskjuhlíð, um tíma einnig sem Golfskálahæð og í seinni tíð sem Veðurstofuhæð.