Í sjávarbökkunum við Fossvog eru merkilegar náttúruminjar. Þar sjáum við um 11.000-13.000 ára gömul setlög frá lokum síðasta jökulskeiðs.

Undir þessum lögum er Reykjavíkurgrágrýti. Neðsta lagið er svo jökulberg úr jökulruðningi frá hopandi jöklinum. Ofan á því eru sjávarsetlög sem mynduðust í grunnum sjó við strönd. Í þeim má sjá steingervinga, einkum skeljar og kuðunga. Ofan á sjávarsetinu er svo aftur að finna jökulberg. Það segir okkur að jökullinn hafi mætt á svæðið á ný eftir að sjávarsetlögin mynduðust.

Steingervingarnir eru af tegundum lífvera sem enn eru til og lifa við strendur Íslands.

Set er úr bergmylsnu sem sest hefur til. Hún berst gjarnan með vatni, jöklum eða vindi. Setlag er jarðlag úr seti.

Fossvogsbakkar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1999. Lesa um friðlýsinguna á vef Náttúruverndarstofnunar.

Gæta verður að umgengni við Fossvogslögin og ekki má hrófla við þeim.

Skoðið vel Fossvogslögin

    • Getið þið greint hvað eru jökullög og hvað eru setlög?
    • Sjáið þið steingervinga?
    • Sjáið þið einhvers staðar stórt grjót í setlögunum? Hvernig ætli það hafi borist þangað?
    • Um jarðlög seytlar oft vatn. Sjáið þið vatn í Fossvogslögunum?
    • Vex gróður í þeim og ef svo er hvers konar?
    • Rannsakið hvernig misgrófur framburður sest til með því að setja smámöl, grófan sand, leir og drullu í stóra glerkrukku ásamt slatta af vatni, hristið og látið setjast til yfir nótt.
Fossvogslögin - (SH).

KENNARAR / FULLORÐNIR

Af vef Umhverfisstofnunar

Einstakt er að svo merkar jarðminjar séu staðsettar í miðri borg og að mestu leyti mjög aðgengilegar og sýnilegar. Rannsókna- og fræðslugildi jarðminjanna á ýmsum sviðum jarðfræði er hátt á heimsvísu og hafa vísindamenn, íslenskir og erlendir, stundað rannsóknir á svæðinu. Þá hafa setlögin hátt fræðslugildi fyrir náttúrufræðikennslu á  öllum skólastigum og fyrir aðra gesti svæðisins. Sem dæmi má nefna að Bláfánastarf Ylstrandarinnar í Nauthólsvík stendur reglulega fyrir fræðsluviðburðum á og í tengslum við svæðið.

Steingervingarnir

Vel er hægt að sjá skeljar í setlögunum. Þær eru þó ekki heillegar heldur meira eins og hvítar agnir.

Fallsteinar

Víða má sjá stóra steina í Fossvogi (úti á leirunni, nálægt landi og sums staðar í sjálfum bökkunum)  sem hafa borist á ísjökum frá skriðjöklinum út í sjó og síðan fallið til botns í fínt setið. Munið að sjórinn náði lengra upp á land þegar setlögin mynduðust.