Garðaflöt
Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr
Landslag: Garður – borgarskipulag
Varúð: Götur nálægt
Athyglisvert: Garðurinn var sá fyrsti sem komið var upp í íbúðahverfi. Þetta var um 1960. Síðan þá hafa trén heldur betur vaxið. Í garðinum eru leiktæki.
Grundargerðisgarður
Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr
Landslag: Garður – borgarskipulag
Varúð: Götur nálægt
Athyglisvert: Garðurinn er mjög fallegur og vel útfærður. Sumir tala um að hann sé falin perla. Íbúar í nágrenninu þekkja þó vel Grundargarð og sumir sækja sér þangað ber af berjarunnum. Í garðinum eru leiktæki og sleðabrekka. Breiðagerðisskóli er í næsta nágrenni við garðinn, sem er talsvert notaður í skólastarfinu.
Bjarkarhlíð – áður Birkihlíð
Lífríki: Tré, gróður, fuglar, smádýr
Landslag: Garður og skógrækt
Varúð: Götur nálægt
Athyglisvert: Fyrstu eigendur hússins í Birkihlíð ræktuðu upp skóg í kringum sig, en þarna var áður grýtt holt. – Núna er í húsinu skjól þeirra sem hafa þurft að þola ofbeldi.