Einarsgarður 

Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr

Landslag: Garður – borgarskipulag

Varúð: Götur nálægt

Athyglisvert: Þarna var komið upp gróðrarstöð í kringum aldamótin 1900. Einar Helgason var umsjónarmaður og það skýrir heiti garðsins. Hann lagði áherslu á að gera tilraunir með matjurtir, en þó ræktaði hann líka tré, runna og skrautblóm. Einarsgarður er elsti hluti gróðrarstöðvarinnar og þar er nú þessi fallegi lystigarður. Í garðinum er stytta af rómverskri gyðju, Pomonu.

KORT