Grafreitur í Gufunesi

Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr

Landslag: Garður – hönnun

Athyglisvert: Stór áburðarverksmiðja var starfrækt í Gufunesi. Nú er þar kvikmyndaver. Í Gufunesi var til forna kirkja og kirkjugarður. Þegar verksmiðjan var byggð voru beinin tekin úr kirkjugarðinum og komið fyrir í nýjum grafreit, Grafarvogskirkjugarði. Hinn nýi grafreitur var hannaður útfrá fornum fyrirmyndum.

Gufuneskirkjugarður

Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr

Landslag: Garður

Athyglisvert: Kirkjugarðurinn var tekinn í notkun árið 1980. Í kirkjugarðinum mætti skoða ýmsar garðaplöntur og sumarblóm. Þangað koma líka margir fuglar, einkum þrestir og starar.

KENNARAR / FULLORÐNIR

Grafreiturinn

Reynir Vilhjálmsson teiknaði grafreitinn í Gufunesi. Hann hefur verið „frumkvöðull við að útfæra og endurskapa eftir fyrirmyndum úr fornri íslenskri byggingarhefð og gerði hlaðna veggi, traðir og túngarða að veigamiklum þáttum í nútímalegri landslagshönnun. Grafreiturinn í Gufunesi er lítt þekkt en mjög gott dæmi um hönnun Reynis í þessum anda. “ (Sjá nánar Garðar – lifandi minjar bls. 66.)