Austurheiðar er útivistarsvæði ofan við borgina sem nær yfir Hólmsheiði, Grafarheiði og Reynisvatnsheiði. Þar er skógur, lúpínubreiður, jökulsorfnar klappir og klettar. Hér og þar má sjá villtan gróður og víða eru hæðir þar sem útsýni er gott.

Þarna lúra stöðuvötnin Rauðavatn, >Reynisvatn og Langavatn.

Svæðið er í mótun sem útivistarsvæði. Þar eru margir göngu- og hjólastígar auk nokkurra reiðvega og á veturna eru lagðar gönguskíðabrautir um svæðið.

Í Paradísarskál mega hundar vera lausir og þar hefur líka verið sett upp þrautabraut fyrir hunda!

Í Austurheiðum má til dæmis rannsaka gróður, tré, fléttur og smádýr.
Þar er lúpína áberandi – lesa um hana.

Þar má líka skoða og rannsaka jökulminjar.

Eins er svæðið kjörið til að leika sér, fara í göngutúr eða á skíði.

Þar er líka gott að horfa yfir.

Gott útsýni, skógur og stórgrýti - (SH).

Jökulrákir á klöppum – stórgrýti og tré – leiktæki – Paradísarskál – (SH).

Kort og loftmynd. Deplar sýna hvar gott er að koma inn á svæðið. (Reykjavíkurborg)