Bláfjöll séð frá Vatnsendahlíð. Vífilsfell er til vinstri á myndinni og er hærra en hin fjöllin - (SH).

Landslag

Bláfjöll er heiti á fjallgarði austan Reykjavíkur. Skíðafólk þekkir Bláfjöll en þar er líka áhugavert að ganga hvort sem er upp á fjöllin eða inn á milli þeirra þegar lítill eða enginn er snjórinn.

Móberg - (SH).

Landslagið einkennist af hraunum, gígum og hinu furðulega móbergi. Víða eru hellar og skútar. Mosi vex mjög víða en einnig eru inn á milli móar (með berjalyngi!) og grösugir vellir.

Veður

Úrkoma er hvergi meiri í nágrenni Reykjavíkur en í Bláfjöllum. Samkvæmt mælingum er hún um þrefalt meiri en í borginni. Það er gott upp á snjóinn og vatnið sem safnast í Gvendarbrunna.

Staður fyrir fólk

Á suðvesturhluta landsins er mesta þéttbýlið. Sveitarfélögin á svæðinu tóku sig saman um að stofna sérstakan Bláfjallafólkvang.

Í fólkvangi er fólki gert auðvelt að komast út í „guðsgræna náttúruna“ til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu.

Lesa nánar um Bláfjallafólkvang á vef Umhverfisstofnunar.

Skíði

Ekki má gleyma frábæru skíðasvæði í Bláfjöllum!

Skemmtilegar skíðabrekkur - (KS).