Miðsvæði í Efra-Breiðholti
Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr
Landslag: Garður – borgarskipulag
Athyglisvert: Á svæðinu eru skólar, sundlaug og önnur íþróttamannvirki sem tengjast saman með almenningsgarðinum. Trén eru orðin stór og hér og þar eru leiktæki.
Miðsvæði Seljahverfis: Seljabotnar og Seljatjörn
Lífríki: Gróður, fuglar, smádýr á þurru landi og ferskvatni
Landslag: Garður – borgarskipulag – tjörn
Athyglisvert: Í Seljabotnum rennur lítill lækur – hann er náttúrulegur en Seljatjörnin sjálf er manngerð. Í henni og kringum hana er gaman að leika sér. Þar má sjá hornsíli. Svo má bregða sér í Ævintýraeyjuna og vonandi komast þangað án þess að blotna.
Þetta græna svæði tengir saman ýmsar stofnanir; kirkju, dvalarheimili, íþróttamannvirki og skóla. Þar eru skemmtileg leiktæki og sum náttúruleg, til dæmis stórt grjót og trjádrumbar.
Skógurinn
Lífríki: Skógur, skógarfuglar og fleira tilheyrandi!
Landslag: Ræktaður skógur í borgarlandi – stígar
Athyglisvert: Myndarleg tré sem þarna var plantað þegar Breiðholtið byggðist upp. (Hér má sjá umfjöllun um tré og skóg.)
Sauðhóll
Lífríki: Gróður og smádýr innan um grjóthnullunga.
Landslag: Þýfður, mosa- og grasivaxinn grjóthóll.
Athyglisvert: Sumir trúa að í hólnum sé bústaður álfa. Umhverfis hólinn var mýri, Sauðhólsmýri. Sagan segir að sauðir hafi drepist á hólnum og þaðan sé nafnið á hann komið. – Vegna þess að álfar mótmæla stundum harkalega framkvæmdum var ákveðið að færa til Vesturberg 2-6 miðað við upphaflegar teikningar.