Fréttir, Veður

Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó!

Nú er bæði kalt og rakt í háloftunum og snjór myndast í skýjunum. Mikið hefur snjóað í morgun og í nótt í Reykjavík og útlit er fyrir að snjói áfram.

Já, snjór verður til í skýjunum. Í frosti myndast þar ískristallar. Þeir eru agnarsmáir, sveima um, rekast hver á annan og renna síðan saman í snjókorn (eða -flygsur). Þegar þau eru orðin nógu stór falla þau til jarðar.

Snjókoma er breytileg eftir því hversu kalt er úti. Ef það er mikið frost er snjórinn þurr og loðir illa saman. Þá er erfitt að hnoða snjóbolta! Sé frostið minna koma flygsur. Ef hitastigið fer yfir frostmark getur komið slydda sem er blanda af snjó og regni.

Snjóflygsa er lík kornflexi í laginu.

Veðurspá seinna í dag - (Veðurstofa Íslands).

Hvað er hundslappadrífa?

Undir trjánum - (SH).
Snjókorn rannsökuð - (SH).

Á Vísindavefnum má finna fróðleik um myndun snjókorna.

Þar segir meðal annars: Flyksurnar eru mjög óreglulegar að lögun, en séu þær skoðaðar með stækkunargleri má oft sjá einstaka smáa reglulega kristalla af ýmsu tagi.

  • Hvað er hægt að gera skemmtilegt í snjónum? – Hvað ætlið þið að gera? – Viljið þið kannski senda mynd?
  • Skoðið snjókornin. Til að sjá þau vel er gott að horfa á þau í gegnum stækkunargler. Eins er gott að horfa á snjókorn sem hafa fallið á dökkt efni, t.d. dökkt handklæði eða bara lopavettlinga.
  • Sækið snjó í glas og farið með hann inn. Auðvitað bráðnar hann, en takið eftir hvort snjórinn og vatnið sem myndast taka jafnmikið pláss. Hvernig er best að rannsaka það?
  • Hvað tekur það snjóinn langan tíma að bráðna? Hvað ætli hafi áhrif á það hversu hratt snjórinn bráðnar?
  • Svo má borða nýfallinn, hreinan snjó og ekki er slæmt að setja svolítið síróp út á. (Takk fyrir ábendinguna Hera kennari í Landakotsskóla.)