Fréttir, Lífríki, Maður í náttúru

Af syngjandi og verpandi svartþröstum

Þegar jólatréð á Austurvelli var tekið niður um daginn kom í ljós nýlegt svartþrastarhreiður með eggjum.

Í samanburði við aðra fugla fara svartþrestir snemma að huga að varpi og hreiðurgerð. Nú þegar má heyra fuglana syngja, en söngurinn á bara eftir að aukast eftir því sem lengra líður. Hann er oft áberandi mjög snemma á morgnana. Söngur gegnir hlutverki þegar fuglarnir helga sér óðal og við pörun. Karlfuglinn flytur tónverk og lætur um leið aðra karla vita að þetta sé hans svæði. Ef vel tekst til við sýninguna nær hann kannski að heilla og lokka til sín kellu.

Hreiður með eggjum í fannst í Oslóartrénu á Austurvelli þegar það var tekið niður - (Reykjavíkurborg).
Svartþröstur - (JÓH).

Svartþröstur er nýlegur varpfugl á Íslandi, en frá 1991 hefur hann verpt reglulega á höfuðborgarsvæðinu. Hann er orðinn algengur í Reykjavík en útbreiðsla hans á landinu er mjög takmörkuð.

Svartþrestirnir í jólatrénu á Austurvelli voru þó of snemma í því. Reyndar fundust nokkur fleiri hreiður í runnum og trjám á Austurvelli. Varp um hávetur er líklega dæmt til að mistakast. Benedikt Traustason líffræðingur sem vinnur hjá Reykjavíkurborg skýrði þetta varp með óvenjulega hlýju og góðu veðri og eins því að jólaljósin í miðborginni hefðu ef til vill ruglað ferli mökunar hjá svartþröstunum. Þeir hafi haldið að daginn væri tekið að lengja svo tímabært væri að hefja búskap!

Til er mengun sem kallast ljósmengun. Hún kemur til af manngerðum ljósum sem hafa neikvæð áhrif á lífríki og stundum líka heilsu fólks.

  • Spilið hljóð svartþrastarins á Fuglavefnum. Heyrið þið stundum þennan söng í umhverfi ykkar?
  • Hvað þýðir að helga sér óðal?
  • Hver er útlitsmunur á kven- og karlfuglum?
  • Berið saman útlit og stærð skógarþrastar og svartþrastar.
  • Veltið fyrir ykkur ljósmengun og ræðið hana.
  • Algengt er að sjá svartþresti í görðum þar sem eru tré. Farið í leiðangur, horfið í kringum ykkur og reynið að finna svartþresti. Fylgist með þeim. Hvað eru þeir að gera? Skráið.